Í tilkynningu frá Isavia segir að samkvæmt áætlun félagsins verði flogið tvisvar í viku milli Akureyrar og Gatwick-flugvallar, á þriðjudögum og laugardögum út mars á næsta ári.
Haft er eftir Sigrúnu Björk Jakobsdóttur, framkvæmdastjóra Isavia innanlandsflugvalla, að það hafi verið stór stund að taka á móti fyrstu easyJet flugvélinni þegar hafi lent á Akureyrarflugvelli.
„Þessi góða viðbót í umferðina um Akureyrarflugvöll sýnir enn frekar hversu mikilvægt það var að ráðast í stækkun flugstöðvarinnar og allar þær framkvæmdir aðrar sem við höfum hafið á vellinum. Áætlað er að viðbyggingin verði tilbúin í lok þessa árs og mun hjálpa okkur við að taka enn betur á móti þeim farþegum sem koma til okkar með easyJet. Með breytingum á núverandi flugstöð til viðbótar verðum við svo komin með tvo aðskilda sali fyrir innanlands- og millilandaflug,“ segir Sigrún Björk.

Þá er haft eftir Arnheiði Jóhannsdóttur, framkvæmdastjóra Markaðsstofu Norðurlands, að flug easyJet beint til Akureyrarflugvallar sé grunnforsenda til að hægt verði að jafna árstíðarsveifluna sem enn sé mikil á Norðurlandi. Þannig verði komnar forsendur fyrir uppbyggingu heilsársferðaþjónustu og fjárfestingu á svæðinu.
„Farþegar easyJet munu koma bæði í pakkaferðum ferðaskrifstofa en einnig að stórum hluta á eigin vegum og því skapast mikil tækifæri fyrir ferðaþjónustuna á svæðinu til að byggja upp nýjar vörur og fá ferðamenn til að dreifast vel um svæðið. Að ná easyJet hingað norður hefur verið langhlaup sem unnið hefur verið í góðu samstarfi ferðaþjónustunnar, sveitarfélaga og stjórnvalda. Þessi dagur er gríðarlega ánægjulegur og sýnir hverju samtakamátturinn getur skilað,“ segir Arnheiður.
Fréttir bárust af því í maí síðastliðinn að norðlenska flugfélagið Niceair væri farið í þrot, en félagið bauð upp á ferðir frá Akureyrarflugvelli til Lundúna, Tenerife, Alicante og Kaupmannahafnar.