Vígamenn Hamas-samtakanna og samtakanna Íslamskt Jihad hafa notað göng til að stinga upp kollinum fyrir aftan ísraelska hermenn, skjóta á þá og hörfa aftur. Þeir hafa einnig notað sprengjuvörpur gegn ísraelskum hermönnum og varpað sprengjum á þá úr drónum.
Einn viðmælandi Reuters sem býr í Gasa-borg sagði blaðamanni fréttaveitunnar að ísraelskir hermenn hefðu ekkert sótt fram frá því í gær og það væri vegna stífari mótspyrnu en þeir áttu von á. Hermenn hafa líka sagt að jarðsprengjur og gildrur hafi hægt á þeim.
Nokkur myndbönd sem Hamas-liðar hafa birt á síðustu dögum má sjá hér að neðan. Þau sýna hvernig skæruhernaður þeirra fer fram.
Það hefur þó ekki stöðvað Ísraela. Þeir hafa nánast klofið Gasaströndina í tvennt eftir að innrás þeirra hófst um síðustu helgi eftir linnulausar loftárásir í þrjár vikur.
„Við erum komnir að hliðum Gasa-borgar,“ sagði einn talsmanna hersins í dag, samkvæmt frétt Reuters.
Myndbönd frá ísraelska hernum gefa í skyn að Ísraelar aki bryn- og skriðdrekum sínum í farveg jarðýtna og sleppi þannig við jarðsprengjur. Þeir eru einnig sagðir hafa keyrt í gegnum hús og yfir rústir húsa í stað þess að nota vegi.
Hér að neðan má sjá myndband frá ísraelska hernum sem birt var í gær. Það sýnir meðal annars áhafnir skriðdreka skjóta á trjálínu og sækja fram eftir ruddum leiðum.
, , >> pic.twitter.com/HuRVONPhT2
— (@idfonline) November 1, 2023
Tala látinn hækkar og hækkar
Árásir Ísraela hafa komið verulega niður á óbreyttum borgurum. Heilbrigðisráðuneyti Gasastrandarinnar, sem Hamas stýrir, segir minnst níu þúsund manns hafa fallið í árásum Ísraela. Þar á meðal ku vera rúmlega 3.700 börn.
Þetta er í fimmta sinn sem stríð geisar á Gasaströndinni milli Hamas og Ísraela en það er það mannskæðasta. Stríðið hófst eftir að vígamenn Hamas réðust inn í suðurhluta Ísraels og bönuðu minnst 1.400 manns og þar af lang flestir óbreyttir borgarar. Um 240 gíslar voru einnig teknir til Gasastrandarinnar.

Um 2,3 milljónir manna búa á Gasaströndinni, sem er eitthvað þéttbýlasta svæði heimsins. Meira en helmingur íbúa er sagður á vergangi vegna árása Ísraela.
Hér að neðan má sjá annað myndband sem ísraelski herinn birti í dag. Því fylgdi texti um að til átaka hefði komið við vígamenn í nótt, og að skotbardagar hefðu staðið yfir í töluverðan tíma.
" " , . , , >> pic.twitter.com/TSUhXr9fTf
— (@idfonline) November 2, 2023
Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, hefur kallaði eftir svokölluðu „mannúðarhlé“ á árásum Ísraela svo hægt sé koma óbreyttum borgurum til aðstoðar. Aðrir þjóðarleiðtogar hafa tekið undir það.
Þeir sem kalla eftir hléi hafa bæði bent á það hörmulega ástand sem íbúar Gasa búa við og haldið því fram að Ísraelar séu að fremja stríðsglæp með því að refsa almennum borgurum fyrir glæpi fárra einstaklinga.
Sjá einnig: Biden segir þörf á hléi
Vonast er til þess að hægt væri að flytja inn nauðsynjar til borgara og gera þeim kleift að flýja undan átökum. Talið er að hundruðir þúsunda manna haldi enn til í Gasa-borg og nærliggjandi bæjum og byggðum.

Ísraelar hafa leyft takmarkaða birgðaflutninga inn á Gasaströndina en þvertaka fyrir að leyfa flutinga eldsneytis inn á svæðið og segja að Hamas-liðar myndu ræna því.
Samkvæmt AP fréttaveitunni eru sjúkrahús að verða óstarfhæf vegna skorts á eldsneyti fyrir ljósavélar þeirra. Á einu þeirra, þar sem hlúð hefur verið að þeim sem særðust í árásunum á Jabalia-flóttamannabúðirnar í gær, hafa starfsmenn þurft að slökkva á flestöllum ljósum og kælum í líkhússi sjúkrahússins.
