Ísland á kortið sem dýraníðingar og umhverfissóðar Jakob Bjarnar skrifar 3. nóvember 2023 09:11 Mörgum hefur brugðið illa í brún við myndirnar sem Veiga Grétarsdóttir kom með til lands eftir að hafa hún fór og kannaði ástandið í sjókvíunum. veiga grétarsdóttir The Guardian hefur tekið til umfjöllunar það mál sem skekið hefur íslenska sjókvíaeldisiðnaðinn að undanförnu; lús hefur lagt undir sig sjókvíar og herjar á lax.
Íslendingar eru ekki einir um að lesa um hörmungarnar í sjókvíum Artic Fish í Tálknafirði. The Guardian er með á forsíðu umfjöllun um málið með fyrirsögninni: „Sea-lice outbreak on Icelandic salmon farm a ‘welfare disaster’, footage shows“ eða Lúsafaraldur brýst út í fiskeldisfyrirtæki, dýravelferðar-hörmungar, sýna myndir. Þar er greint frá því að drónamyndir sýni opnar sjókvíar fullar af fiski sem eru með opin sár, sem nú þurfi að slátra og eru afurðirnar notaðar í dýrafóður. Myndir sem Guardian hefur undir höndum, sem sýna alvarlega sýktan fisk, dauðan eða deyjandi, hefur verið lýst af sérfræðingi í dýravelferðarmálum sem hörmungum á skala sem aldrei hefur sést áður. Drónaskot, sem tekin voru í síðustu vikur yfir opnum sjókvíum á hinum afviknu Vestfjörðum, sýnir lax þjakaðan af lúsabiti að honum hefur nú verið slátrað. Lúsafaraldur verður ekki verri en þetta Tólf kvíar eru taldar vera undirlagðar í sníkjudýrunum sem í voru um milljón fiskar undanfarna mánuði, þó nákvæmar tölur liggi ekki fyrir. Sérhæft skip frá Noregi, the Hordafor III, var sent frá Noregi til að slátra fisknum, en skipið megi sjá á meðfylgjandi myndum. Umrætt sníkjudýr, sjólúsin, nærist á skinni laxanna sem leiða til opinna sára veikja ofnæmiskerfi laxanna. Í verstu tilvikum geti það leitt til dauða þeirra og það er það sem er að gerast. Guardian vitnar í Berglindi Helgu Bergsdóttur, sem er sérfræðingur í dýrasjúkdómum hjá MAST, sem sé íslenska matvælastofnunin, segist aldrei hafa séð annað eins magn í íslenskum sjókvíum. Hún hafi reyndar aldrei séð annað eins. „Lúsafaraldurinn verður ekki verri en þetta,“ er haft eftir Berglindi Helgu. Sárin hafa versnað vegna bakteríusýkingar sem gerir sárin dýpri og meiri. „Það sem kom öllum á óvar er hversu hratt þetta gerðist.“ Guardian segir þetta koma á versta tíma fyrir iðnaðinn á Íslandi. Í ágúst hafi 3,500 laxar sloppið úr sjókvíum í eigu Artic Fis, sem er eitt tveggja fyrirtækja sem er með starfsemi í Tálknafirði, þar sem lúsafaraldurinn geisar, sem leiddi til mikillar reiði umhverfissinna og leiddi til lögreglurannsóknar. Allir sem rætt er við hafa aldrei séð annað eins Í greininni segir að Artic Fish sé eitt af stærstu laxeldisfyrirtækjum landsins, í eigu norska risafyrirtækisins Mowi. Laxasleppingunum hefur verið mótmælt meðal annars af Björk, sem gaf út lag í samvinnu við Rosalíu, Catalan-stjörnunnar og er talið að það hafi mikil áhrif. En þær hafa sagt sjókvíaeldið hafa stórskaðleg áhrif á íslenska náttúru. MAST undirstrikar að þau tvö fyrirtæki sem eru með starfsemi í Tálknafirði, Artic Fish og Arnarlax, hafi tekið þá ákvörðun að slátra öllum fiski og að hann verði ekki notaður til manneldis. Arnarlax hafi sagt að ekki séu endilega allar kvíar sýktar. En þegar fisknum verði slátrað þá verði hann notaður í dýrafóður. Mast rannsakar málið, að sögn Bergsdóttir og vitnað er í Trygve Poppe, laxasérfræðing og fyrrverandi prófessor í velferð fiska og hann segir þetta versta tilfelli sem hann hafi nokkru sinni séð. Þá er talað við Veigu Grétarsdóttur, kayak-ræðarann sem tók myndirnar og hún segist í áfalli vegna ástandsins á fisknum. Ísland er er nú komið rækilega á kortið og þá ekki fyrir nokkuð sem landsmenn vilja endilega að haft verði í hávegum; sem land dýraníðs og umhverfissóðaskaps.
Fjölmiðlar Sjókvíaeldi Umhverfismál Lax Dýraheilbrigði Mest lesið Sögulegur dagur fyrir frönsku þjóðina að baki Erlent „Ástæða til að hafa áhyggjur“ Erlent Ferðamaður sofnaði undir stýri og ók á rútu Innlent Hrædd um að hún mæti óvart í gömlu vinnuna í fyrramálið Innlent Hundsbitum fari fjölgandi Innlent Vöknuðu á floti og stigu út með drulluna upp að hnjám Erlent Skúffukaka og mjólk vegna pirrings út af töppum Innlent Óður hundur réðst á tvo í Grafarvogi Innlent Hjólhýsi fauk af veginum í Borgarfirði Innlent „Fólk er einfaldlega hrætt“ Erlent Fleiri fréttir Hrædd um að hún mæti óvart í gömlu vinnuna í fyrramálið Hundsbitum fari fjölgandi Skúffukaka og mjólk vegna pirrings út af töppum Viðbrögð við sögulegum tölum í Frakklandi í beinni Ferðamaður sofnaði undir stýri og ók á rútu Hjólhýsi fauk af veginum í Borgarfirði Séra Arna Ýrr tekur við af verðandi biskupi Grafarvogsbúar þurfi ekki að óttast blokkir Óður hundur réðst á tvo í Grafarvogi Tónlistarveisla framundan í Skálholti Fórna sumarfríinu til að hjálpa fólki á hálendinu Öflugur skjálfti í Bárðarbungu Kosningar, uppbygging í Grafarvogi og hálendisvakt „Ég mun ekki taka þátt í prófkjöri aftur“ Tekinn próflaus á 120 kílómetra hraða Samsæriskenningar, borgarstjóri um húsnæðismál og kosningar Stungumaðurinn á hlaupahjólinu áfram í haldi Fleiri foreldrar í vanda með máluppeldi en áður Riðu um miðbæinn til að fagna Landsmóti Ómögulegt að vita hvað leynist í „brúnku-nefspreyjum“ sem seld eru á samfélagsmiðlum 82 ára snillingur í Hafnarfirði í hannyrðum „Hann á að vera hér á Íslandi“ Myndir frá eldsvoðanum í Húsafelli í nótt Alvarlegar aukaverkanir af brúnkunefspreyjum og brottvísun Yazans Tamimi Rændi fötum fyrir nánast hundrað þúsund Hugsi yfir lausagöngu fjár við vegi eftir að ferðamaður ók á lamb Séra Aldís Rut ráðin prestur við Grafarvogskirkjuprestakall Parísarhjólið varla óvinsælt ef sextíu þúsund vilja taka snúning Rabarabarahátíð í gamla bænum á Blönduósi Býst ekki við nýju eldgosi Sjá meira