Enski boltinn

Moyes: Myndi skammast mín að geta ekki varist þessu

Dagur Lárusson skrifar
David Moyes á hliðarlínunni
David Moyes á hliðarlínunni Vísir/Getty

David Moyes, þjálfari West Ham, var allt annað en sáttur með sína leikmenn eftir tap liðsins gegn Brentford í ensku úrvalsdeildinni í gær.

Eftir að hafa lent undir 1-0 snemma leiks þá kom West Ham til baka og var staðan 1-2 í hálfleik. En það var síðan Brentford sem skoraði tvö mörk í seinni og var Moyes alls ekki ánægður með það hvernig hans leikmenn vörðust.

„Það er ekki eins og við séum að tala um einhver undir og stórmerki þegar kemur að þessu mörkum, þetta voru venjuleg mörk sem við hefðum auðveldlega getað komið í veg fyrir,“ byrjaði Moyes að segja.

„Við vörðumst ekki sóknum sem ég myndi skammast mín sem leikmaður að hafa ekki varist betur.“

„Mín lið gera svona yfirleitt ekki, við verjumst alltaf vel. Þess vegna er ég ósáttur, við komum hingað og gátum ekki varist betur en þetta þegar pressan var á okkur,“ endaði David Moyes að segja.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×