Fótbolti

„Við unnum og áttum það skilið“

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Mauricio Pochettino segir að sínir menn hafi átt sigurinn skilið.
Mauricio Pochettino segir að sínir menn hafi átt sigurinn skilið. Ryan Pierse/Getty Images

Maruicio Pochettino, knattspyrnustjóri Chelsea, var eðlilega sáttur eftir 4-1 sigur gegn sínu gamla félagi Tottenham í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld.

Pochettino mætti aftur á sinn gamla heimavöll í fyrsta skipti sem þjálfari er Chelsea heimsótti Tottenham í kvöld og þrátt fyrir að hafa spilað stóran hluta leiksins tveimur mönnum fleiri þurftu gestirnir að hafa fyrir hlutunum.

Liðið komst ekki í forystu fyrr en að um stundarfjórðungur var til leiksloka, en þá opnuðust allar flóðgáttir og Chelsea vann að lokum 4-1 sigur.

„Svona er fótboltinn. Við unnum og áttum það skilið. Tæknin er hluti af leiknum og við verðum að sætta okkur við það. Það er mikið sem gerist á vellinum og það þarf að ganga úr skugga um að allt sé rétt,“ sagði Pochettino í leikslok.

„Horfðu bara á leik Tottenham og Liverpool sem var á þessum velli fyrr á tímabilinu, þar vann Tottenham á síðustu mínútu. Mér fannst við eiga þetta skilið. Tottenham er að gera frábæra hluti, en í kvöld fannst mér við vera betra liðið,“ bætti Pochettino við.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×