Lífið

Dóttir Haf­þórs Júlíusar og Kelsey fæddist and­vana

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Hjónin hafa talað opinskátt um baráttu þeirra við ófrjósemi.
Hjónin hafa talað opinskátt um baráttu þeirra við ófrjósemi. Kelsey

Dóttir kraftajötunsins Hafþórs Júlíusar Björnssonar og eiginkonu hans Kelsey Henson fæddist andvana eftir rúmlega 21. vikna meðgöngu í vikunni. Hjónin greina frá þessu í sameiginlegri færslu á samfélagsmiðlum.

„Með sorg í hjarta greinum við frá því að dóttir okkar fæddist andvana,“ skrifa foreldrarnir meðal annars við færsluna. Stúlkan fæddist 8.nóvember síðatsliðinn.

„Orð fá ekki lýst þeim mikla sársauka sem missirinn né þeirri hamingju að hafa fengið að eyða tíma með dóttur okkar,“ segir enn fremur.

Hjónin greindu frá óléttunni í október að þau ættu von á sínu öðru barni eftir baráttu við ófrjósemi til margra ára. Fyrir eiga þau saman einn dreng. Hafþór á eina stúlku úr fyrra sambandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.