Leik Vålerenga lauk með 3-1 sigri gegn Stabæk, þær lentu snemma undir en unnu sig til baka, skoruðu tvö undir lok fyrri hálfleiks og eitt í seinni til að tryggja sigurinn.
Leikmenn biðu svo frétta úr viðureign Rosenborg gegn LSK. Rosenborg þurfti sigur til að halda Vålerenga innan við þremur stigum frá sér og eiga möguleika á titlinum í lokaumferðinni. Þær komust snemma yfir en jöfnunarmark Irene Dirdal fyrir LSK í seinni hálfleik tryggði Vålerenga titilinn.
Det magiske øyeblikket der vi innser at vi er seriemestere 2023!🔥🔥🔥 pic.twitter.com/BQ37gxAzG3
— Vålerenga Fotball Kvinner (@VIFDamer) November 11, 2023
Rosenborg og Vålerenga mætast í næstu og síðustu umferð deildarinnar, allt stefndi í hreinan úrslitaleik ef Rosenborg hefði unnið í dag, en ekkert verður úr því.
Vålerenga varð síðast deildarmeistari árið 2020 en það var í fyrsta skipti í sögunni, Rosenborg bíður enn eftir sínum fyrsta meistaratitli.
Seriemestere 2023! pic.twitter.com/ImhOby79Rn
— Vålerenga Fotball Kvinner (@VIFDamer) November 11, 2023
Rosenborg gefst tækifæri á hefndum þegar liðin mætast í úrslitaleik bikarsins þann 26. nóvember.