Enski boltinn

Jón Daði kom af bekknum og lagði upp

Smári Jökull Jónsson skrifar
Jón Daði í leik með Bolton.
Jón Daði í leik með Bolton. Vísir/Getty

Jón Daði Böðvarsson átti góða innkomu hjá Bolton Wanderers í dag en hann lagði upp sigurmark liðsins í leik gegn Blackpool.

Jón Daði hóf leikinn á varamannabekknum í dag en kom inn í framlínuna á 65. mínútu leiksins. Aðeins níu mínútum síðar var Jón Daði búinn að leggja upp eina mark leiksins en það var George Thompson sem kom knettinum í netið.

Góður 1-0 sigur Bolton því staðreynd en liðið er í þriðja sæti League One deildarinnar og aðeins einu stigi á eftir Portsmouth og Oxford sem sitja í sætunum fyrir ofan.

Rúnar Alex Rúnarsson sat allan tímann á varamannabekk Cardiff sem tapaði 3-2 fyrir Norwich á heimavelli. Rúnar Alex hefur fá tækifæri fengið hjá Cardiff en hann er á láni hjá félaginu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×