Enski boltinn

„VAR hafði rétt fyrir sér“

Smári Jökull Jónsson skrifar
Arteta fagnar ásamt Declan Rice leikmanni Arsenal.
Arteta fagnar ásamt Declan Rice leikmanni Arsenal. Vísir/Getty

Mikel Arteta var ánægður á blaðamannafundi eftir sigur Arsenal gegn Burnley í gær. Hann var ósáttur með dómgæsluna í leik Arsenal gegn Newcastle um síðustu helgi en hrósaði þeim í gær.

Sigur Arsenal í gær var nokkuð þægilegur þó svo að Burnley hafi tekist að jafna í 1-1 og Arsenal misst Fabio Vieira af velli með rautt spjald á 83. mínútu.

„Ég er mjög ánægður með úrslitin og sérstaklega frammistöðuna. Eftir að hafa spilað fyrir 72 klukkustundum síðar og með síðustu þrjá leiki í huga, hvernig við spiluðum gegn Newcastle, gegn Sevilla og svo nú í dag. Við tókum yfir leikinn á móti liði þar sem er erfitt að taka yfir leikinn. Við sköpuðum margar góðar stöður og mér fannst við eiga sigurinn fyllilega skilinn,“ sagði Arteta á blaðamannafundi eftir leikinn í gær.

Fabio Vieira fékk rauða spjaldið á 83. mínútu eftir fremur klaufalega tæklingu. Arteta lét gamminn geysa eftir leik Arsenal og Newcastle um síðustu helgi og gagnrýndi frammistöðu dómarans og þá gaf Arsenal út yfirlýsingu eftir leik sem var af sama meiði.

Í gær hrósaði Arteta hins vegar dómgæslunni.

„Varðandi rauða spjaldið, já VAR hafði rétt fyrir sér. Dómarinn hafði rétt fyrir sér. Mjög góð ákvörðun, mjög jákvætt hjá Mikel að ræða um það. Góð ákvörðun,“ sagði Arteta og talaði um sjálfan sig í þriðju persónu.

„Þetta er það sem þetta lið gerir. Við komum til baka. Við spiluðum á besta mögulega máta til að halda pressunni við topp deildarinnar. Við gefum allt til að vinna leik og eiga það skilið. Þegar andstæðingurinn er betri er bara að óska þeim til hamingju. Mér finnst við hafa verið betri aðilinn í síðustu þremur leikjum.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×