Innlent

„Nú er bið­staða“

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Úlfar Lúðvíksson, lögreglustjóri á Suðurnesjum.
Úlfar Lúðvíksson, lögreglustjóri á Suðurnesjum. Vísir/Baldur

Lögreglan á Suðurnesjum og aðrir viðbragðsaðilar eru nú í biðstöðu. Lögreglustjórinn á Suðurnesjum segir nóttina hafa verið viðburðarlitla en viðbragðsaðilar munu funda klukkan 11:00.

„Það er ekkert nýtt að frétta en vísindamenn Veðurstofu funda núna kl. 09:30 og svo er stöðufundur hjá viðbragðsaðilum, samhæfingarstöð í Skógarhlíð og aðgerðarstjórn í Reykjanesbæ klukkan 11:00,“ segir Úlfar Lúðvíksson, lögreglustjóri í samtali við Vísi.

Eins og fram hefur komið vonast almannavarnir til þess að geta hleypt Grindvíkingum heim í stutta stund. Það sé þó ekki hægt að taka ákvörðun um það nema að loknum fundi, þar sem farið verði yfir hættumat og nýjustu gögn.

„Nú er biðstaða,“ segir Úlfar. „Það er enginn inni á svæðinu, en við höldum því öruggu. Við erum með okkar menn á lokunarpóstum. Svo verðum við að bara að bíða sjá til hvað kemur fram á þessum fundi.“


Tengdar fréttir

Ríkisstjórnin fundar í hádeginu

Ríkisstjórn Íslands mun funda í dag í Ráðherrabústaðnum klukkan 12:00. Þar verður farið yfir stöðuna á Reykjanesskaganum.

Hundruð hafa boðið fram húsnæði fyrir Grindvíkinga

Mikill fjöldi hefur skráð húsnæði sitt í boði fyrir Grindvíkinga. Teymisstjóri Rauða krossins segir húsnæðið verða metið í dag. Um 120 gistu í fjöldahjálparstöðvum Rauða krossins í nótt. 

Vonast til þess að geta hleypt Grindvíkingum heim í stutta stund

Hjördís Guðmundsdóttir, upplýsingafulltrúi almannavarna, segir að á fundi almannavarna og sérfræðinga Veðurstofunnar klukkan 9.30 verði farið yfir stöðuna, hættumatið og það endurmetið hvort að íbúar fái að fara inn á hættusvæðið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×