Enski boltinn

Aldrei tapað með Liverpool þegar hann hefur skorað sjálfur

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Diogo Jota fagnar marki sínu í gær og þakkar Kostas Tsimikas fyrir sendinguna.
Diogo Jota fagnar marki sínu í gær og þakkar Kostas Tsimikas fyrir sendinguna. AP/Jon Super

Stuðningsmenn Liverpool ættu að fagna sérstaklega mikið þegar Portúgalinn Diogo Jota skorar fyrir félagið. Hingað til hefur það bara þýtt eitt: Liverpool tapar ekki leiknum.

Diogo Jota var á skotskónum í 3-0 sigri Liverpool á Brentford í ensku úrvalsdeildinni í gær.

Þettar var 41. leikurinn sem Jota skorar í fyrir Liverpool í ensku úrvalsdeildinni og Liverpool liðið hefur ekki tapað neinum þeirra.

Liverpool hefur unnið 34 leiki og gert sjö jafntefli í þessum leikjum sem Jota hefur verið á skotskónum.

Jota skoraði markið sitt á 74. mínútu eftir sendingu frá Konstantinos Tsimikas. Mohamed Salah hafði skorað tvö fyrstu mörk Liverpool liðsins í leiknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×