James allt í öllu þegar Chelsea lagði Liverpool Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 18. nóvember 2023 15:31 Lauren James fagnar einu af mörkum sínum í dag. Richard Heathcote/Getty Images Lauren James var mögnuð þegar Englandsmeistarar Chelsea lögðu Liverpool 5-1 í úrvalsdeild kvenna á Englandi. James kom að fjórum mörkum Chelsea en hún skoraði þrjú og lagði upp eitt.
Lauren James kom meisturunum yfir strax á 11. mínútu eftir undirbúning Sophie Ingle sem varð með leik dagsins leikjahæsti leikmaður deildarinnar frá upphafi. Hin 32 ára gamla Ingle var að spila sinn 184. leik í ensku úrvalsdeildinni. Liverpool jafnaði aðeins tveimur mínútum síðar þegar Jessica Carter varð fyrir því óláni að setja boltann í eigið net. Meistararnir voru þó ekki lengi að ná forystunni á nýjan leik en Agnes Beever-Jones skoraði eftir undirbúning James á 24. mínútu, staðan 2-1 í hálfleik. James kom Chelsea tveimur mörkum yfir snemma í síðari hálfleik eftir undirbúning Sam Kerr. James fullkomnaði svo þrennu sína á 64. mínútu eftir sendingu frá varamanninum Johanna Rytting Kaneryd. LAUREN JAMES HAT TRICK VS. LIVERPOOL pic.twitter.com/2JC8fckpue— B/R Football (@brfootball) November 18, 2023 Sjoeke Nüsken bætti fimmta markinu við áður en leiknum lauk og Chelsea vann einkar sannfærandi 5-1 sigur. Chelsea er á toppi deildarinnar með 19 stig að loknum 7 umferðum. Liverpool er í 5. sæti með 11 stig.
Fótbolti Enski boltinn Mest lesið McGregor fundinn sekur og þarf að borga tugi milljóna í skaðabætur Sport Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Enski boltinn Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Íslenski boltinn Létt gönguferð í skóginum hjá Arsenal Enski boltinn Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Íslenski boltinn Stelpurnar okkar rændar jöfnunarmarki? Handbolti „Bjóst bara við því að við værum að fara vinna árið eftir“ Körfubolti Einfalt hjá Chelsea sem sækir að toppnum Enski boltinn Albert kemur til greina sem sá besti á Ítalíu Fótbolti Cecilía búin að loka og læsa marki Inter Fótbolti Fleiri fréttir Úlfarnir skelltu Fulham og enn bíður Villa eftir sigri Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Létt gönguferð í skóginum hjá Arsenal Einfalt hjá Chelsea sem sækir að toppnum Fjórtán ára á æfingum með Arsenal Fær konuna til að eiga við draugana og ætlar ekki að pissa í hornin Amorim fullur sjálfstrausts á fyrsta blaðamannafundinum Meistararnir og Skytturnar missa út lykilmenn Lewandowski fékk ekki að fara til Man. Utd Ed Sheeran hjálpaði Ipswich að ná í leikmann rétt fyrir Taylor Swift tónleika Guardiola samdi til ársins 2027 Rannsókn á hegðun David Coote enn í fullum gangi Tuchel „stelur“ Hilario frá Chelsea og tekur hann inn í teymið Amorim vill að United fái Gomes aftur Martröð fyrirliða Chelsea heldur áfram Neville gagnrýnir Bandaríkjaför Rashford og Casemiro Sagður hafa tvo leiki til að bjarga starfinu Fær ekki að eyða í leikmenn í janúar Liverpool og Newcastle berjast um Mbeumo Fengu ljót skilaboð eftir óléttumynd: „Fyrirmunað að skilja þessi viðbrögð“ Guardiola framlengir við Man. City Klopp vildi fá Antony í stað Salah Tengdasonur Keane skoraði fyrir enska landsliðið Heimildaþáttaröð um lið Rooney og Guðlaugs Victors Landsliðskonurnar eiga von á barni saman Amorim fékk loksins að stýra æfingu hjá Man. United Liverpool fær Van Dijk fyrr til baka Fékk sjö leikja bann fyrir það sem hann sagði um eigin fyrirliða Man. Utd reynir við rándýra ungstirnið sem Amorim leyfði að blómstra Van Nistelrooy sækir um stjórastarfið hjá Coventry Sjá meira