Enski boltinn

Segir Arteta hafa svert í­mynd Arsenal

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Mikel Arteta fór mikinn í gagnrýni sinni á VAR-dómgæsluna eftir tap Arsenal fyrir Newcastle United.
Mikel Arteta fór mikinn í gagnrýni sinni á VAR-dómgæsluna eftir tap Arsenal fyrir Newcastle United. getty/Stuart MacFarlane

David Dein, fyrrverandi varaforseti Arsenal, segir að Mikel Arteta, knattspyrnustjóri liðsins, hafi svert ímynd þess með ummælum sínum um dómara eftir tapið fyrir Newcastle United á dögunum.

Arsenal tapaði fyrir Newcastle, 1-0, 4. nóvember. Eftir leikinn kvartaði Arteta sáran yfir VAR-dómgæslunni. Daginn eftir sendi Arsenal frá sér yfirlýsingu þar sem félagið tók undir orð Artetas.

Ekki eru þó allir sáttir við Arteta og mótmæli hans. Meðal þeirra er Dein sem var varaforseti Arsenal á árunum 1983-2007.

„Á 101 mínútu af fótbolta áttum við aðeins eitt skot á mark svo þú getur ekki sagt að liðið hafi átt skilið að vinna. Svona er þetta,“ sagði Dein.

„Það er ferli til staðar hvernig þú tekst á við svona hluti og mér fannst þetta óþarfi. Þetta gerði ímynd félagsins ekki gott.“

Dein sagði að svona lagað hefði ekki gerst á hans vakt og hann hefði sennilega refsað Arteta ef hann brugðist svona við þegar hann réði ríkjum hjá Arsenal.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×