Enski boltinn

Lætur Nu­nez heyra það eftir harka­lega upp­á­komu í Manchester

Aron Guðmundsson skrifar
Nunez átti eitt og annað ósagt við Pep Guardiola, knattspyrnustjóra Manchester City eftir leik um helgina.
Nunez átti eitt og annað ósagt við Pep Guardiola, knattspyrnustjóra Manchester City eftir leik um helgina. Vísir/Getty

Garth Crooks, blaða­maður BBC, gagn­rýnir Darwin Nu­nez, sóknar­mann Liver­pool fyrir hegðun hans eftir leik Liver­pool gegn Manchester City á Eti­had leik­vanginum á laugar­daginn síðast­liðinn.

Leiknum lauk með 1-1 jafn­tefli og sýndi Liver­pool góða spretti í leiknum. Spretti sem Crooks segir Nu­nez hafa gert sitt besta til þess að varpa skugga yfir.

Það átti sér nefni­legast stað at­vik eftir leik þar sem að Nu­nez virtist eiga eitt­hvað ó­sagt við Pep Guar­diola, stjóra Manchester City. þjálfarar Liver­pool gengu hratt og örugg­lega á milli og skyldu kappana að. Jur­gen Klopp var snöggur að ganga á milli og dró Nu­nez í burtu með hraði og virtist jafn­framt glotta hressi­lega við tönn.

„Nu­nez reyndi sitt besta til þess að varpa skugga yfir góða frammi­stöðu Liver­pool,“ skrifar Crooks í upp­gjöri sínu á um­ferð helgarinnar í ensku úr­vals­deildinni á vef BBC. „Það færi honum betur að verja tíma sínum í að reyna finna lausn á því af hverju hann er ekki að skora mörk, fremur en að stofna til á­floga og láta pirring sinn bitna á knatt­spyrnu­stjóra and­stæðinganna eftir að hafa verið skipt af velli.“

Knatt­spyrnu­stjórar beggja liða gerðu lítið úr at­vikinu í við­tölum eftir leik og gera má ráð fyrir því að því sé hér með lokið.

Spennan er mikil í topp­bar­áttu ensku úr­vals­deildarinnar um þessar mundir. Arsenal kom sér upp í topp­sæti deildarinnar með 1-0 úti­sigri á Brent­ford á laugar­daginn. Manchester City situr í öðru sæti með 29 stig, einu stigi meira en Liver­pool sem vermir þriðja sætið. Þá er Aston Villa í 4.sæti með sama stiga­fjölda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×