Þríeykið hefur lokið tökum á þætti um ferð sína til Simbabve, sem gefinn verður út á næsta ári. The Independent hefur eftir heimildarmönnum sínum að það verði síðasti þátturinn í þáttaröðinni, allavega undir stjórn þeirra þriggja.
Þættirnir hófu göngu sína árið 2016 og hafa notið nokkuð mikilla vinsælda. Fyrst um sinn komu reglulega út þættir en undanfarin ár hafa færri en lengri þættir verið framleiddir á ári.
Þeir Clarkson, Hammond og May hófu þó gjöfult samstarf sitt fyrir margt löngu. Þeir stýrðu saman bílaþættinum Top Gear á breska ríkissjónvarpinu á árunum 2002 til 2015. Top Gear naut þvílíkra vinsælda á sínum tíma að Clarkson var um árabil launahæsti starfsmaður breska ríkissjónvarpsins.
Hann var rekinn árið 2015 eftir að starfsmaður í framleiðsluliðinu greindi frá því að Clarkson hefði kýlt hann eftir rifrildi um veitingar á tökustað. Þeir Hammond og May ákváðu að hætta í kjölfarið og vinsældir Top Gear döluðu mikið. Fyrr í ár var tilkynnt um að framleiðslu þeirra væri lokið.
Aðdáendur þríeykisins munu vafalítið sjá á eftir því en í febrúar kemur út þáttur um ferðalag þess um Máritaníu og seinna á næsta ári kemur síðasti þátturinn út.