Skytturnar með fjögurra stiga for­ystu eftir sigur á Úlfunum

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Á toppnum.
Á toppnum. EPA-EFE/ANDY RAIN

Topplið ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu, Arsenal, var á leið að vinna þægilegan 2-0 heimasigur á Wolves þangað til gestirnir skoruðu undir lok leiks. Nær komust þeir ekki og unnu Skytturnar 2-1 sigur í dag.

Segja má að toppliðið hafi í raun gengið frá leiknum þegar innan við stundarfjórðungur var liðinn. Bukayo Saka kom Skyttunum yfir strax á 6. mínútu eftir sendingu frá Takehiro Tomiyasu.

Það var svo aðeins örfáum mínútum síðar sem Martin Ödegaard tvöfaldaði forystu heimamanna, að þessu sinni var Oleksandr Zinchenko með stoðsendinguna.

Á 23. mínútu urðu Úlfarnir fyrir miklu áfalli þegar Jose Sá, markvörður liðsins, meiddist og þurfti að fara af velli. Í hans stað kom Daniel Bentley og stóð vaktina það sem eftir lifði leiks.

Staðan var 2-0 í hálfleik og þannig var hún allt þangað til Tomiyasu fór meiddur af velli fyrir Ben White. Á 85. mínútu þegar Matheus Cunha skoraði með frábæru skoti innan úr vítateig Arsenal. Strax í næstu sókn gat Eddie Nketiah klárað leikinn en skot hans fór í stöngina.

Arsenal er nú með fjögurra stiga forystu á Englandsmeistara Manchester City sem eiga þó leik til góða í 2. sætinu.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira