Everton á flugi en vand­ræði Chelsea halda á­fram

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Everton hefur unnið þrjá leiki í röð í ensku úrvalsdeildinni.
Everton hefur unnið þrjá leiki í röð í ensku úrvalsdeildinni. Chris Brunskill/Fantasista/Getty Images

Everton vann sinn þriðja leik í röð er liðið tók á móti Chelsea í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Lokatölur 2-0 og Chelsea fjarlægist efri hluta deildarinnar.

Það var Abdoulaye Doucoure sem kom heimamönnum í Everton í forystu með marki á 54. mínútu þegar hann var fyrstur að átta sig og tók frákast eftir að Robert Sanchez hafði varið vel frá Dominic Calvert-Lewin.

Gestirnir frá Lundúnum, sem hafa átt í stökustu vandræðum með að skora mörk á tímabilinu, fengu sín færi til að jafna metin áður en Lewis Dobbin gerði út um leikinn með marki á annarri mínútu uppbótartíma og þar við sat.

Niðurstaðan því 2-0 sigur Everton sem situr í 17. sæti deildarinnar með 13 stig, sex stigum minna en Chelsea sem situr í 12. sæti.

Á sama tíma vann Fulham ótrúlegan 5-0 sigur gegn West Ham þar sem Raul Jiminez, Willian og Tosin Adarabioyo sáu um markaskorun liðsins í fyrri hálfleik.

Varamennirnir Harry Wilson og Carlos Vinicius bættu svo sínu markinu hvor við í síðari hálfleik og niðurstaðan varð fimm marka stórsigur Fulham.

Fulham situr nú í tíunda sæti deildarinnar með 21 stig, þremur stigum minna en West Ham sem situr í níunda sæti.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira