Meistararnir snéru taflinu við gegn ný­liðunum

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Jack Grealish skoraði sigurmark Manchester City.
Jack Grealish skoraði sigurmark Manchester City. Richard Heathcote/Getty Images

Eftir að hafa verið án sigurs í síðustu fjórum leikjum eru Englandsmeistarar Manchester City komnir aftur á sigurbraut eftir 1-2 endurkomusigur gegn nýliðum Luton í dag.

Þrátt fyrir að hafa verið mun minna með boltann og að hafa varla skapað sér færi í leiknum voru það heimamenn í Luton sem tóku forystuna með marki frá Elijah Adebayo eftir stoðsendingu frá Andros Townsend í uppbótartíma fyrri hálfleiks.

Gegn gangi leiksins gengu heimamenn því með 1-0 forystu inn til búningsherbergja þegar flautað var til hálfleiks.

Það var svo loksins á 62. mínútu að gestunum frá Manchester tókst loksins að jafna metin þegar Bernardo Silva kom boltanum í netið og aðeins þremur mínútum síðar kom Jack Grealish liðinu yfir með marki eftir stoðsendingu frá Julian Alvarez.

Reyndist það síðasta mark leiksins og niðurstaðan varð því 1-2 sigur Manchester City sem situr í fjórða sæti deildarinnar með 33 stig eftir 16 leiki, fjórum stigum minna en topplið Liverpool. Luton situr hins vegar í 18. sæti með níu stig, fjórum stigum frá öruggu sæti.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira