Man United í krísu á ný eftir af­hroð gegn Bour­nemouth

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Bruno Fernandes átti ekki sinn besta dag.
Bruno Fernandes átti ekki sinn besta dag. Danehouse Photography Ltd/Getty Images

Bournemouth gerði sér lítið fyrir og vann Manchester United 3-0 á Old Trafford í Manchester í ensku úrvalsdeild karla í knattspyrnu. Bournemouth hefur nú unnið fimm af síðustu sjö leikjum sínum.

Fyrir leik var búist við áhugaverðri viðureign þar sem Man United hafði unnið Chelsea í miðri viku og gat af alvöru blandað sér í Meistaradeildarbaráttuna. Á sama tíma höfðu lærisveinar Andoni Iraola í Bournemouth fundið taktinn og unnið fjóra af síðustu sex leikjum sínum.

Það sló þögn á Old Trafford þegar Dominic Solanke kom gestunum yfir strax á 5. mínútu leiksins. Lewis Cook gaf fyrir markið eftir að gestirnir unnu boltann ofarlega á vellinum þökk sé ömurlegri sendingu Bruno Fernandes. Framherjinn Solanke tók hlaupið á nær og kláraði færi sitt frábærlega.

Eftir þetta lögðust gestirnir til baka á meðan heimamenn vissu ekki sitt rjúkandi ráð. Leikmenn Man United tókst varla að skapa sér færi en gestirnir voru ávallt hættulegir þegar þeir sóttu. Áttu þeir til að mynda skot í stöng. Staðan þó enn 0-1 þegar flautað var til loka fyrri hálfleiks.

Síðari hálfleikur spilaðist mjög svipað en heimamenn spiluðu boltanum sín á milli án þess þó að vita hvað þeir ættu að gera við hann. Á 68. mínútu tvöfölduðu gestirnir forystuna, varamaðurinn Phillip Billing skallaði þá fyrirgjöf Marcus Tavernier í netið. Billing var einn á auðum sjó í vítateig heimaliðsins og gat ekki annað en skorað.

Fimm mínútum síðar tryggði Bournemouth sigurinn þegar Marcos Senesi skallaði hornspyrnu Tavarnier í netið. 

Staðan orðin 0-3 en það reyndust lokatölur þó heimamenn hafi viljað fá vítaspyrnu undir lok venjulegs leiktíma og Bournemouth hafi komið boltanum í netið í fjórða sinn. Markið dæmt af vegna hendi í aðdraganda þess.

Sigurinn lyftir Bournemouth upp í 13. sæti með 19 stig á meðan Man United er í 6. sæti með 27 stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira