Enski boltinn

Malard allt í öruggum sigri Man United

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Melvine Malard fagnar með fyrirliðanum Katie Zelem.
Melvine Malard fagnar með fyrirliðanum Katie Zelem. Tom Dulat/Getty Images

Manchester United lagði Tottenham Hotspur örugglega 4-0 þegar liðin mættust í Lundúnum í ensku úrvalsdeild kvenna í knattspyrnu.

Hin franska Melvine Malard kom gestunum frá Manchester yfir eftir tæplega hálftíma. Hannah Blundell með stoðsendinguna. Það reyndist eina mark fyrri hálfleiks og staðan 0-1 þegar liðin gengu til búningsherbergja.

Malard lagði upp annað mark Man United en það skoraði hin uppalda Ella Toone þegar sex mínútur voru liðnar af síðari hálfleik. 

Nokkrum mínútum síðar gulltryggði Malard sigurinn með öðru marki sínu og þriðja marki Man United. Þær létu ekki staðar numið þar og bætti Haley Ladd við fjórða markinu áður en flautað var til leiksloka. Luis Garcia með stoðsendinguna að þessu sinni.

Ekki urðu mörkin fleiri og leiknum lauk með 4-0 sigri gestanna. Sigurinn þýðir að Man Utd er í 4. sæti með 18 stig, fjórum minna en topplið Chelsea og Arsenal sem mættust fyrr í dag. Tottenham er í 6. sæti með 12 stig.

Önnur úrslit

María Þórisdóttir lagði upp fyrra mark Brighton & Hove Albion þegar liðið náði jafntefli gegn Leicester City etir að lenda 2-0 undir, lokatölur 2-2.

Everton vann 1-0 útisigur á West Ham United en tapliðið situr á botni deildarinnar með aðeins 4 stig. Ljóst að liðið saknar Dagnýjar Brynjarsdóttir gríðarlega. Þá gerðu Bristol City og Liverpool 1-1 jafntefli.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×