Innlent

Dag­skrá í­búa­fundar fyrir Grind­víkinga

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Íbúafundurinn verður haldinn í Laugardalshöll á morgun, þriðjudaginn 12. desember, klukkan 17.
Íbúafundurinn verður haldinn í Laugardalshöll á morgun, þriðjudaginn 12. desember, klukkan 17. Vísir/Vilhelm

Íbúafundur verður haldinn fyrir Grindvíkinga á morgun klukkan 17 í anddyrinu á nýju Laugardalshöllinni. Tilgangur fundarins er að miðla upplýsingum vegna jarðhræringa í og við Grindavík og mun íbúum gefast tækifæri til að bera fram spurningar á fundinum.

Fundarstjóri verður Fannar Jónasson, bæjarstjóri Grindavíkur, og verður fundurinn sendur út í beinu streymi á heimasíðu Grindavíkur, grindavik.is.

Dagskrá fundarins

Frummælendur eru eftirtaldir:

  • Fulltrúi frá Veðurstofu Íslands.
  • Fulltrúi frá Almannavörnum.
  • Hulda Ragnheiður Árnadóttir, forstjóri Náttúrutryggingar Íslands.
  • Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra.

Að loknum framsögum verða umræður og fyrirspurnir. Til svara auk frummælenda eru:

  • Atli Geir Júlíusson, sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssvið hjá Grindavíkurbæ.
  • Eggert Sólberg Jónsson, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs.
  • Jón Þórisson, sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
  • Nökkvi Már Jónsson, sviðstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs.
  • Jóhanna Lilja Birgisdóttir, yfirsálfræðingur á fræðslusviði.
  • Sigurður Kristmundsson, hafnarstjóri Grindavíkurhafnar.
  • Ari Guðmundsson, byggingarverkfræðingur og sviðstjóri hjá Verkís.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×