Á mánudag var greint frá því að Árni Tómas Ragnarsson gigtarlæknir hafi verið sviptur læknaleyfi sínu að hluta og gæti ekki lengur ávísað lyfjum til sjúklinga sinna. Árni hefur aðstoðað hóp fíkla en hann aðhyllist skaðaminnkandi úrræði.
Verkefnastjóri skaðaminnkunnar á Landspítalanum sagði í kjölfarið það hafa hræðilegar afleiðingar í för með sér fyrir þann hóp fólks. Það þýddi einfaldlega að þau þyrftu að verða sér úti um lyfin annars staðar.
Geðlæknir á fíknigeðdeild Landspítala og framkvæmdastjóri lækninga hjá SÁÁ skrifuðu svo pistil á Vísi í dag þar sem fram kom lyfjaávísanir líkt og Árni skrifaði upp á sé engin lausn fyrir þann hóp fíkla sem ekki getur eða vill hætta neyslu.
„Ég geri nú ráð fyrir því að það séu ekki aðrir sem taki upp á því að skrifa út svona lyf á þennan hátt,“ sagði Valgerður Rúnarsdóttir, framkvæmdastjóri lækninga hjá SÁÁ.
Má gera betur
Þeir sem vilji fá aðstoð við fíkn hafi möguleika á því - eins þeir sem sem leiti aðstoðar vegna neyslunnar.
„Þeir hafa líka möguleika að geta fengið úrræði eins og skaðaminnkandi til að tryggja aðgang að sprautum, mikið talað um húsnæði rými sem skiptir miklu máli en svo er til lyfjameðferð við ópíóðafíkn og hún er líka til skaðaminnkunar - fólk er ekki endilega að hætta í vímuefnaneyslu þó það sé í þeirri meðferð.“
Sú lyfjameðferð sé gagnreynd og viðurkennd. Það þurfi þó að vera betra aðgengi að slíkri meðferð enda hafi verið erfitt að fá þá meðferð fjármagnaða af ríkinu.
„Það má gera betur og sérstaklega fyrir þennan hóp sem að þarf meiri þjónustu í nærumhverfinu.“