Enski boltinn

Klopp sagði yfir­burðina hafa verið meiri en í 7-0 sigrinum

Smári Jökull Jónsson skrifar
Klopp tekur á móti boltanum á hliðarlínunni í dag.
Klopp tekur á móti boltanum á hliðarlínunni í dag. Vísir/Getty

Jurgen Klopp segir að Liverpool hafi sýnt meiri yfirburði í leik liðsins gegn Manchester United í dag en í 7-0 sigrinum í fyrra. Liðin gerðu markalaust jafntefli á Anfield í dag.

Liverpool og Manchester United gerðu markalaust jafntefli þegar liðin mættust í ensku úrvalsdeildinni á Anfield í dag. Liverpool mistekst því að fara í toppsæti deildarinnar á nýjan leik en Arsenal fór á toppinn eftir sigurinn á Brighton í dag.

Jurgen Klopp knattspyrnustjóri Liverpool var í viðtali eftir leik og hann var svekktur með niðurstöðuna.

„Það eina sem ég er ekki ánægður með eru úrslitin því við hefðum átt að skora. Ég var ánægður með ákefðina og hvernig við byrjuðum leikinn. Ég held að allir hafi séð hvað við vildum gera,“ sagði Klopp eftir leik en Liverpool byrjaði leikinn af miklum krafti og voru nálægt því að skora í upphafi leiks.

Liverpool hafði mikla yfirburði í fyrri hálfleik og leikmenn Manchester United komust í örfá skipti inn á varnarþriðjung Liverpool í hálfleiknum.

„Gagnpressan hjá okkur var líklega sú besta síðan þessi hópur var settur saman. Við hleyptum þeim ekkert áfram í fyrri hálfleiknum en þeir fengu færi í seinni hálfleik þar sem við þurftum á Ali (Alisson) að halda.“

Jurgen Klopp og Virgil Van Dijk svekktir á svip þakka áhorfendum á Anfield eftir leik í dag.Vísir/Getty

Leikurinn opnaðist í síðari hálfleiknum og þá fengu bæði lið færi til að skora. Trent Alexander-Arnold komst næst því þegar hann skaut hárfínt framhjá marki United. Þá fékk Rasmus Höjlund gott færi fyrir United en Alisson í marki Liverpool varði vel.

Klopp hélt áfram að tala um yfirburði Liverpool og sagði þá hafa verið meiri en í 7-0 sigri Liverpool gegn United í fyrra.

„Ég man ekki eftir jafn mikilli yfirburðaframmistöðu gegn Manchester United. Í 7-0 leiknum voru þeir meira inni í leiknum. En þetta fór 0-0 og eflaust úrslit sem þeir eru ánægðari með en við. Fyrir okkur er bara að taka þessu stigi og halda áfram.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×