Sport

Lög­mál leiksins: Jóla­dagur verður epískur

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Stórveldi NBA deildarinnar, Celtics og Lakers, mætast á Jóladag.
Stórveldi NBA deildarinnar, Celtics og Lakers, mætast á Jóladag. Barry Chin/Getty Images

„Nei eða Já“ er fastur liður í Lögmáli Leiksins, umfjöllunarþætti um NBA deildina. Kjartan Atli, þáttastjórnandi, spurði þar Sigurð Orra spjörunum úr og bað hann álits á brennandi málefnum innan deildarinnar.

Undir lokin barst talið að hátíðardegi sem kristintrúar og NBA aðdáendur eiga sameiginlegan, Jóldagurinn 25. desember. Þrír stórleikir fara fram þann dag í NBA deildinni og þeir félagar fullyrtu það að dagurinn yrði „epískur“. 

Sigurður sagðist ekki geta hugsað sér betri leik á Jóladag en viðureign Boston Celtics gegn Los Angeles Lakers, tvö sigursælustu lið deildarinnar frá upphafi.

Klippa: Lögmál Leiksins: Draymond að vera Draymond

Aðrar fullyrðingar sem Kjartan lagði fyrir að þessu sinni voru: Við þurfum að hafa áhyggjur af Cade Cunningham, James Harden var réttur kostur fyrir Clippers og Cleveland er ekki byggt til árangurs í úrslitakeppninni. 

LA Lakers og Boston Celtics, NY Knicks og Milwaukee Bucks, Golden State Warriors og Denver Nuggets mætast öll á Jóladag. Leikirnir verða í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 2. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×