Fótbolti

Tveir ís­lenskir Nökkvar í Rotter­dam

Sindri Sverrisson skrifar
Kristian Nökkvi Hlynsson er orðinn leikmaður Sparta Rotterdam, að láni út leiktíðina frá Ajax.
Kristian Nökkvi Hlynsson er orðinn leikmaður Sparta Rotterdam, að láni út leiktíðina frá Ajax. Sparta Rotterdam

Landsliðsmaðurinn Kristian Nökkvi Hlynsson fær vonandi að sjást meira á fótboltavellinum á næstu mánuðum eftir að hafa verið lánaður frá Ajax til Sparta Rotterdam út leiktíðina. Hann hittir þar fyrir annan Íslending.

Kristian, sem er 21 árs gamall, kom til Ajax árið 2020 og sprakk út á síðustu leiktíð þegar hann skoraði til að mynda sjö mörk í hollensku úrvalsdieldinni og spilaði þar 25 leiki.

Á þessu tímabili hefur Kristian hins vegar lítið spilað fyrir aðallið Ajax, en meira fyrir varaliðið. Hann hefur verið í byrjunarliði aðalliðsins í þremur deildarleikjum, síðast 1. desember, og í einum leik í Evrópudeildinni í haust.

Kristian fær væntanlega fleiri tækifæri hjá Sparta Rotterdam en liðið er í umspilsfallsæti með 17 stig eftir 20 leiki, þremur stigum frá næsta örugga sæti. Næsti leikur liðsins er við Groningen á sunnudaginn.

Það verða tveir íslenskir Nökkvar í liði Sparta Rotterdam það sem eftir lifir leiktíðar því fyrr í þessum mánuði kom Dalvíkingurinn Nökkvi Þeyr Þórisson til félagsins frá Bandaríkjunum.

Samningur Kristians við Ajax gildir til sumarsins 2026 og hann mun því að óbreyttu snúa aftur til Amsterdam í sumar, þegar lánsdvölinni í Rotterdam lýkur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×