Arnar Már Ólafsson ferðamálastjóri segir engar staðfestar upplýsingar komnar um komu erlendra fjölmiðla til landsins en yfirgnæfandi líkur séu þó á því að einhverjir séu nú þegar lagðir af stað. Miðstöðin verði opnuð á ný í dag, í síðasta lagi á morgun.
„Það er von á fjölmiðlum enda er þetta stór viðburður,“ segir Arnar.
Miðstöðin fyrir erlenda fjölmiðla var fyrst opnuð í Hafnarfirði þann 19. nóvember síðastliðinn vegna jarðhræringanna á Reykjanesi.
Þangað sóttu stórir fjölmiðlar á borð við CNN, Fox News, AFP og ZDF þegar jarðhræringarnar voru sem mestar í og við Grindavík.
Miðstöðin er liður í því að létta á álagi á viðbraðgsaðila auk þess að vera vettvangur almannavarnadeildar Ríkislögreglustjóra til að hitta fjölmiðla, spjalla við þá og gefa þeim réttar upplýsingar.