Enski boltinn

Jóhann Berg lagði upp í grát­legu tapi Burnl­ey

Smári Jökull Jónsson skrifar
Jóhann Berg var í byrjunarliði Burnley í dag og sést hér í baráttunni við Alex Moreno leikmann Aston Villa.
Jóhann Berg var í byrjunarliði Burnley í dag og sést hér í baráttunni við Alex Moreno leikmann Aston Villa. Vísir/Getty

Jóhann Berg Guðmundsson var í byrjunarliði Burnley sem tapaði naumlega gegn Aston Villa í dag. Úlfarnir unnu sinn þriðja leik í röð í úrvalsdeildinni.

Aston Villa gerði jafntefli við botnlið Sheffield United í síðustu umferð og þurfti nauðsynlega á þremur stigum að halda gegn Jóhanni Berg Guðmundssyni og félögum hans í Burnley. Burnley hefur verið í brasi allt tímabilið og var í næst neðsta sæti deildarinnar fyrir leikinn.

Leon Bailey kom Aston Villa í 1-0 á 28. mínútu eftir sendingu framherjans Ollie Watkins en Zeke Amdouni jafnaði aðeins tveimur mínútum síðar. Moussa Diaby sá til þess að Aston Villa var 2-1 en hann skoraði af markteig eftir sendingu frá Waktins. Í stöðunni 1-1 hafði Lyle Foster komið boltanum í mark Villa en markið var dæmt af vegna rangstöðu.

Brekkan varð síðan enn brattari fyrir Burnley í upphafi síðari hálfleiks þegar Sander Berge var rekinn af velli eftir að hafa fengið sína aðra áminningu.

Á 71. mínútu sofnuðu leikmenn Villa hins vegar á verðinum. James Trafford átti þá markspyrnu frá marki sínu sem Jóhann Berg Guðmundsson skallaði innfyrir vörn Villa. Þar mætti Lyle Foster og lék boltanum inn í teiginn. Hann kláraði færið síðan í nærhornið framhjá Emiliano Martinez í markinu og staðan orðin jöfn.

Jóhann Berg var tekinn af velli skömmu eftir stoðsendinguna og tíu leikmenn Burnley náðu ekki að halda jöfnu. Aston Villa fékk ódýra vítaspyrnu á 89. mínútu sem Douglas Luiz skoraði úr af miklu öryggi. Aston Villa sigldi sigrinum í höfn og tryggði sér stigin þrjú. Lokatölur 3-2 og Aston Villa fer upp í annað sæti deildarinnar með sigrinum og jafnar Liverpool að stigum.

Þrír sigrar í röð hjá Úlfunum en þrjú töp hjá Everton

Wolves vann þægilegan heimasigur á Everton sem tapaði sínum þriðja leik í röð eftir fínt gengi þar á undan. Max Kilman kom Úlfunum í 1-0 í fyrri hálfleik áður en Matheus Cunha og Craig Dawson bættu við mörkum snemma í síðari hálfleiknum. Lokatölur 3-0.

Með sigrinum fara Úlfarnir upp í 11. sæti deildarinnar en þetta var þriðji sigurleikur þeirra í röð.

Í Lundúnum vann Crystal Palace góðan 3-1 sigur á Brentford. Gestirnir komust í 1-0 strax á 2. mínútu en heimamenn sneru stöðunni við fyrir lok fyrri hálfleiks. Michael Olise og Eberechi Eze komu þeim í 2-1 og á 58. mínútu bætti Olise við sínu öðru marki og staðan orðin 3-1 fyrir Palace.

Brentford náði ekki að ógna Crystal Palace að ráði og lærisveinar Roy Hodgson náðu í stigin þrjú. Palace er í 13. sæti úrvalsdeildarinnar með 21 stig en Brentfored tveimur sætum neðar með 19 stig.

Úrslit dagsins:

Luton Town - Chelsea 2-3

Wolves - Everton 3-0

Manchester City - Sheffield United 2-0

Crystal Palace - Brentford 3-1

Aston Villa - Burnley 3-2




Fleiri fréttir

Sjá meira


×