Enski boltinn

Howe: Þurfum að spila full­kominn leik

Dagur Lárusson skrifar
Eddie Howe
Eddie Howe Vísir/getty

Eddie Howe, þjálfari Newcastle, segir að hans lið verði að spila nánast fullkominn leik gegn toppliði Liverpool í kvöld ætli liðið sér að fá eitthvað úr leiknum.

Gengi Newcastle hefur verið arfaslakt upp á síðkastið en liðið hefur tapað hverjum leiknum á fætur öðrum og féll liðið úr Meistaradeildinni einnig um miðjan desember.

„Við höfum átt nokkra sársaukafulla leiki gegn Liverpool síðustu árin. Á síðasta tímabili á Anfield var sérstaklega sársaukafullur en á þessu tímabili á okkar heimavelli var hann í raun ekkert minna sársaukafullur,“ byrjaði Howe að segja.

„En það jákvæða í báðum þessum leikjum var það að við spiluðum vel og gáfum Liverpool alvöru leik.“

„Við þurfum að gera það sama í þessum leik, við þurfum að spila nánast fullkominn leik. Þeir hafa spilað virkilega vel á heimavelli og verið mjög stöðugir og þess vegna verður þetta erfitt. Við þurfum að finna okkar besta form og verðum að vera sterkir andlega,“ endaði Eddie Howe að segja.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×