Enski boltinn

Fyrsta heim­sókn Ratcliffes á Old Trafford eftir kaupin

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Stuðningsmenn Manchester United binda miklar vonir við Sir Jim Ratcliffe.
Stuðningsmenn Manchester United binda miklar vonir við Sir Jim Ratcliffe. getty/Peter Byrne

Sir Jim Ratcliffe mætti á Old Trafford í dag, í fyrsta sinn síðan hann keypti fjórðungshlut í Manchester United.

Á aðfangadag var greint frá því að Ratcliffe hefði keypt 25 prósent hlut í United, félaginu sem hann hefur stutt frá barnæsku.

Ratcliffe verður nokkra daga í Manchester og mun ræða við Erik ten Hag, knattspyrnustjóra United, og leikmenn liðsins.

Með Ratcliffe í för eru Sir Dave Brailsford og Jean-Claude Blanc sem taka við stjórnendahlutverkum hjá United þegar kaupin á fjórðungshlutanum ganga í gegn.

Þetta er fyrsta heimsókn Ratcliffe til Manchester af mörgum á næstu vikum. Hann mun öðlast völd yfir fótboltamálum hjá United og ætlar að gera talsverðar breytingar á þeim.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×