Enski boltinn

Gull­kyn­slóð Eng­lendinga ekki mörg karöt þegar menn setjast í stjóra­stólinn

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Wayne Rooney með Frank Lampard í leik með enska landsliðinu fyrir rúmum tíu árum.
Wayne Rooney með Frank Lampard í leik með enska landsliðinu fyrir rúmum tíu árum. Getty/Steve Bardens

Wayne Rooney er enn eitt dæmið um leikmann úr gullkynslóð Englendinga sem lendir í vandræðum í stjórastólnum.

Rooney var í gær rekinn sem knattspyrnustjóri Birmingham en liðið hefur hreinlega hrunið niður töfluna síðan hann tók við. Rooney var ráðinn 11. október og náði aðeins að stýra b-deildarliðinu í fimmtán leikjum og í 83 daga. Hann tók við liðinu í sjötta sæti en skilur við það í því tuttugasta.

Síðasti leikurinn var 3-0 tap á móti Leeds á mánudaginn sem var níunda tapið og sigurleikirnir urðu bara tveir.

Rooney hafði áður misst starfið hjá bæði Derby County og D.C. United í Bandaríkjunum. Hann segist nú ætla að taka sér hvíld frá fótboltanum en hver veit nema að þjálfaraferill þessa 38 ára gamla goðsagnar sé mögulega á enda. Tækifærunum hér eftir mun alla vega fækka verulega.

Steven Gerrard og Frank Lampard hafa báðir þurft að taka pokann sinn í ensku úrvalsdeildinni á síðustu árum og þeir eru samt þeir sem hafa náð besta árangrinum úr þessari svokallaðri gullskynslóð.

Árangur Gary Neville, Rooney, Paul Scholes og Sol Campbell er mun verri. Gullkynslóð Englendinga eru stjörnur enska landsliðsins í byrjun aldarinnar en þrátt fyrir að verða með marga af bestu leikmönnum sinnar kynslóðar þá náðu þeir aldrei alvöru árangri á stórmótum liðsins.

Gerrard er nú að stýra liði Al-Ettifaq í Sádí Arabíu en árangurinn er ekki upp á marga fiska.

Gerrard gerði reyndar góða hluti með Rangers í Skotlandi frá 2018 til 2021 en var rekinn innan við ári eftir að hann tók við knattspyrnustjórastöðinni hjá Aston Villa. 65% prósent árangur með Rangers en síðan bara 33 prósent árangur með lið Villa og Al-Ettifaq.

Frank Lampard byrjaði vel með Chelsea en missti svo starfið í janúar 2021. Hann náði aðeins 27 prósent árangri með Everton liðið frá janúar 2022 til janúar 2023 og vann síðan aðeins einn af ellefu leikjum þegar hann tók tímabundið við Chelsea í lok síðasta tímabils.

Hér fyrir neðan má sjá yfirlit yfir árangur mannanna úr gullkynslóðinni þegar þeir hafa fengið tækifæri í stjórastólnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×