Lífið

Þessi átta komust á­fram í úr­slita­keppni Idol

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Birgitta, Daníel, Bríet og Árni Páll fengu það erfiða verkefni að velja þá átta sem komust áfram í úrslit Idol stjörnuleitar.
Birgitta, Daníel, Bríet og Árni Páll fengu það erfiða verkefni að velja þá átta sem komust áfram í úrslit Idol stjörnuleitar. Stöð 2

Í kvöld kom í ljós hvaða átta keppendur það eru sem tryggðu sér sæti í úrslitakeppni Idol sem sýnd verður í beinni útsendingu.

Idol-þáttur kvöldsins var sá síðasti sem ekki var sýndur í beinni útsendingu og fyrir framan áhorfendur í sal.

Þeir keppendur sem tryggðu sér sæti í úrslitakeppninni eru: Elísabet, Birgitta, Stefán Óli, Anna Fanney, Rakel, Björgvin, Jóna Margrét og Ólafur Jóhann.

Næsti Idol-þáttur verður sýndur næstkomandi föstudagskvöld. Þá verða áhorfendur í sal og hægt er að kaupa sér miða að keppninni hér.

Hér fyrir neðan má sjá klippu úr þarsíðasta þætti, þeim sem var sýndur 28. desember, þegar rappkvartett keppenda sló í gegn:






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.