Enski boltinn

Hvaða leik­manna mun þitt lið sakna?

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Nokkrir lykilmenn liða í ensku úrvalsdeildinni verða fjarverandi næstu misseri.
Nokkrir lykilmenn liða í ensku úrvalsdeildinni verða fjarverandi næstu misseri. samsett mynd / fotojet / getty images

Enska úrvalsdeildin hefur tekið saman lista yfir alla leikmenn sem verða fjarverandi næstu misserin vegna Asíu- og Afríkumótanna. 

Afríkumótið hefst þann 13. janúar og lýkur 11. febrúar. Asíumótið hefst degi fyrr og endar degi fyrr. Flestöll lið ensku úrvalsdeildarinnar munu sakna einhverra manna meðan þeim stendur yfir. 

Englandsmeistarar Manchester City missa engan frá sér, Newcastle ekki heldur og nýliðar Burnley eru sömuleiðis fullskipaðir. 

Arsenal

Takehiro Tomiyasu (Japan), hefur fest sig í sessi með liðinu en missir af næstu fimm leikjum að minnsta kosti. Hann kallaði eftir því á dögunum að Asíumótið verði fært og spilað á sumrin líkt og Evrópumótið. Mohamed Elneny (Egyptaland) verður sömuleiðis fjarverandi en Thomas Partey (Gana) var ekki kallaður til vegna meiðsla. 

Aston Villa 

Bertrand Traore (Burkina Faso) hefur ekki spilað leik fyrir Villa síðan í október og þeir ættu því ekki að sakna hans sárlega. Enda vel skipaðir á hægri kantinum með Leon Bailey og Moussa Diaby enn til taks. 

Bournemouth

Dango Ouattara (Burkina Faso) fór meiddur af velli í síðasta leik en ferðaðist með samlöndum sínum á Afríkumótið. Antoine Semenyo (Gana) mun spila stórt hlutverk fyrir Gana. Hamad Traoré dró sig úr keppni vegna malaríusýkingar. 

Brentford

Yoane Wissa (Kongó), Saman Ghoddos (Íran), Frank Onyeka (Nígería) eru allt byrjunarliðsmenn sem Brentford mun sakna. Táningurinn Kim Ji-Soo (S-Kórea) hefur ekki enn spilað fyrir liðið eftir að hafa komið í sumar. Góðu fréttirnar eru þær að Ivan Toney mun snúa aftur á völlinn bráðlega, þann 20. janúar nánar tiltekið, eftir að hafa tekið út átta mánaða bann. 

Brighton

Kairu Mitoma (Japan) mun spila lykilhlutverk fyrir sína þjóð sem er spáð góðu gengi á mótinu og gæti farið langt. Simon Adingra (Fílabeinsströndin) hefur verið að glíma við meiðsli en mun taka þátt í Afríkumótinu.

Burnley

Eitt af þremur liðum sem missir engan leikmann.

Chelsea

Nicolas Jackson (Senegal) mun þreyta frumraun sína á Afríkumótinu og vonast til að hjálpa landi sínu að verja titilinn. 

Crystal Palace

Jordan Ayew (Gana) er á leið á sitt sjötta Afríkumót. 

Everton

Idrissa Gueye (Senegal) ákvað að fara og freista þess að verja titilinn. Annað en Abdoulaye Doucouré (Malí) sem kaus að hafna kallinu og hjálpa Everton í fallbaráttunni.

Fulham

Missa þrjá menn: Calvin Bassey, Alex Iwobi (Nígería) og Fodé Ballo-Touré (Senegal). 

Liverpool

Mikill missir fyrir Liverpool en Mohamed Salah (Egyptaland) og Wataru Endo (Japan) verða báðir fjarverandi. 

Luton Town

Issa Kaboré (Burkína Fasó), blóðtaka fyrir Luton sem þurfa á öllum sínum mönnum að halda. 

Manchester City

Gleðifréttir fyrir Englandsmeistarana, enginn leikmaður fjarverandi vegna mótanna, gæti reynst þeim vel í atlögunni að titlinum. 

Manchester United

André Onana (Kamerún) hefur sæst við samlanda sína og ákveðið að spila aftur fyrir hönd Kamerún. Hann fékk leyfi til að spila deildarleik við Tottenham þann 14. janúar en fer svo beint á Afríkumótið, aðeins 24 tímum fyrir fyrsta leik Kamerún. 

Newcastle 

Sem betur fer fyrir Newcastle missa þeir ekki fleiri menn. Meiðslavandræði hafa hrjáð liðið og hópurinn er þegar þunnskipaður. 

Nottingham Forest

Ekkert lið missir jafn marga menn og Forest, sex samtals. Serge Aurier, Willy BolyIbrahim Sangaré (Fílabeinsströndin), Cheikhou Kouyaté, Moussa Niakhaté (Senegal) og Ola Aina (Nigeria)

Sheffield United

Aðeins einn byrjunarliðsmaður, Anis Ben Slimane (Túnis). Varamaðurinn sem hefur enn ekki spilað, Yasser Larouci (Alsír) verður sömuleiðis fjarverandi. 

Tottenham

Missa þrjá lykilmenn, Pape Sarr (Senegal), Yves Bissouma (Malí) og Heung Min-Son (S-Kórea). Gæti reynst erfitt að finna menn í þeirra stað. 

West Ham 

Mohammed Kudus (Gana) og Nayed Aguerd (Marokkó) eru báðir lykilmenn. Auk þess meiddist Lucas Paqueta á dögunum og verður fjarri í einhvern tíma. 

Wolverhampton Wanderers 

Munu sakna mikið Hwang Hee-Chan (S-Kórea), Boubacar Traoré (Malí) og Rayan Aït-Nouri (Alsír). Unglingaliðsleikmaðurinn Justin Hubner (Indónesía) var sömuleiðis valinn. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×