Það sem gerir Ánægjuvogina einstaka er að enginn veit hvenær mælingin fer fram né hvaða markaðir eru mældir hverju sinni. Afhending Ánægjuvogarinnar í ár fer fram á Grand Hótel og hefst beint streymi frá viðburðinum klukkan 8:30.
Íslenska ánægjuvogin er félag í eigu Stjórnvísi og er framkvæmd í höndum Prósent. Markmið verkefnisins er að láta fyrirtækjum í té samræmdar mælingar á ánægju viðskiptavina en einnig nokkrum öðrum þáttum sem hafa áhrif á hana s.s. ímynd, mat á gæðum og þjónusta. Mæling sem þessi er talin mjög mikilvæg þar sem rannsóknir hafa sýnt fram á að því ánægðari sem viðskiptavinir fyrirtækis eru því betri afkomu getur fyrirtækið gert sér vonir um.