Innlent

Gera hlé á vinnu við varnar­garða

Gunnar Reynir Valþórsson skrifar
Varnargarðarnir eru taldir hafa haft mikið að segja þegar fór að gjósa á sunnudaginn.
Varnargarðarnir eru taldir hafa haft mikið að segja þegar fór að gjósa á sunnudaginn. Vísir

Vinna við varnargarðana á Reykjanesi hefur verið stöðvuð tímabundið á meðan staðan er endurmetin.

Frá þessu er greint í Morgunblaðinu í dag en þar segir Hjálmur Sigurðsson hjá Ístaki að mælingar hafi staðið yfir í gær enda séu hraunflæðilíkön sem unnið var með ekki lengur gild eftir gosið á sunnudag. Á meðan unnið sé úr þeim gögnum verði beðið með frekari framkvæmdir við garðana.

Hann segir verktakana þó ekki standa aðgerðarlausa, verið sé að vinna við stofnlögn kalda vatnsins en hluti hennar fór undir hraun í gosinu og þá eru framkvæmdir í gangi við nýjan veg frá varnargörðunum austast og inn á Bláa-lóns veginn vestan við lónið.


Tengdar fréttir

Áfram líkur á að gossprungur opnist án fyrirvara

Kvikusöfnun heldur áfram undir Svartsengi en of snemmt er að segja til um hraða landrissins svo snemma eftir eldgos. Samkvæmt reiknilíkönum liggur kvika grunnt í suðurenda kvikugangsins, þar virðist landið vera mikið sprungið og kvikan eigi því auðvelt með að komast upp á yfirborðið. Áfram eru því líkur á að nýjar gossprungur opnist án fyrirvara.

Uppbyggingu varnargarða við Grindavík haldið áfram

Forsætisráðherra segir að uppbyggingu varnargarða við Grindavík verði haldið áfram. Þeir hafi sýnt gildi sitt í gær og markmiðið sé að verja byggðina í Grindavík til framtíðar. Ríkisstjórnin leggur til við Alþingi að afkomustuðningur við Grindvíkinga verði framlengdur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×