Skoðun

Frum­varp mat­væla­ráð­herra lé­legt kosninga­plagg!

Sigurður Páll Jónsson skrifar

Nú hefur umsagnafrestur um fiskveiðifrumvarp matvælaráðherra verið framlengdur. Ráðherra hlýtur að gera sér grein fyrir að frumvarpið í núverandi mynd verður aldrei samþykkt í núverandi ríkisstjórn. Ég gef mér að ráðherra hafi hugsað með sér að í næstu kosningabaráttu geti hún notað þetta frumvarp sér og sínum flokk til framdráttar. En staðreyndin er sú að enginn útgerðaraðili mér aðvitandi er sáttur við frumvarpið, hvorki frá smábátum til stæðstu útgerða fyrirtækja.

Einnig vekur athygli að innan eiginn flokks ráðherra, Vinstri grænna, er mikill klofningur um frumarp þetta. Landsamband smábátaeigenda sem varaþingmaður VG í norðvestur kjördæmi talar fyrir LS, lýsir yfir andstöðu við þetta plagg. Einnig fer þingmaður VG í norðvestur kjördæmi undan í flæmingi, aðspurður vegna málsins.

Á síðasta ári lagði matvælaráðherra fram frumvarp um að breyta strandveiðum til fyrra horfs frá því fyrir árið 2019. Innan flokks ráðherra var engin eining vegna þess og sýnir greinilega að núverandi matvælaráðherra hlustar ekki einu sinni á sitt eigið fólk, því hún er í pólitík, sinni eigin pólitík! Frumvarp þetta var eitt af þeim málum sem sópað var út af borðinu fyrir sumarfrí alþingis síðasta vor. Þá var öllum málum sem ríkisstjórnin kom sér ekki saman um að klára „sópað undir teppið“. Annars hefði ríkisstjórnin sprungið!

Mikið hefur gengið á frá því síðasta sumar þegar matvælaráðherra stöðvaði hvalveiðar daginn áður en veiðar áttu að hefjast. Braut hún þar með lög um atvinnuréttindi sem gerir ríkið skaðabótaskylt gagnvart því frjárhagstjóni sem af því hlýst. Þær skaðabætur þurfa skattgeiðendur að borga! Matvælaráðherra ætlar ekki að segja af sér, hún er nefnilega í pólitík, og finnst þar af leiðandi að þar gildi ekki landslög, sérstaklega ef lögin eru gömul.

Eitt sinn var núverandi matvælaráðherra umhverfisráðherra og afrekaði m.a að koma virkjanakostum rammaáætlunar úr nýtingaglokk í biðflokk en lofaði í staðin þáverandi forsætisráðherra samfylkingarinnar að VG mundi styðja umsókn að ESB aðild Íslendinga. Í dag blasir við orkuskortur og pattstaða er innan ríkistjórnarinnar við virkjanaframkvæmdum er öllum ljós.

Undirritaður hefur skrifað greinar og haldið margar ræður, síðan árið 2017 um þá póltisísku misþyrmingu sem lýðræðinu eru sýndar með því að mynda ríkisstjórn þvert yfir hinn pólitíska öxul frá vinstri til hægri. Þá er ríkisstjórnarsáttmálinn eingöngu um að koma sér saman um að hafa enga stefnu og leggja öll pólitísk stefnumál viðkomandi flokka til hliðar. Þetta eru hrein svik við kjósendur og þar með lýðræðisleg misþyrming.

Höfundur er varaþingmaður Miðflokksins í Norðvesturkjördæmi.




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×