Innlent

Hættu­mat fært niður en hætta af sprungum enn mjög mikil

Árni Sæberg skrifar
Frá Grindavík á dögunum.
Frá Grindavík á dögunum. Vísir/Arnar

Hætta í tengslum við sprungur innan Grindavíkur er áfram metin mjög mikil í uppfærðu hættumati. Heildarhættumat fyrir Grindavík hefur verið fært niður í appelsínugult, töluverð hætta.

Í tilkynningu um nýtt hættumat á vef Veðurstofunnar segir að landris haldi áfram vegna kvikusöfnunar undir svæðinu við Svartsengi. Síðustu daga hafi land risið um allt að 8 millimetra á dag, sem sé örlítið hraðara landris en mældist fyrir gosið 14. janúar.

Tími í fyrri stöðu mældur í vikum frekar en dögum

Á þessum tímapunkti sé erfitt að fullyrða um hversu mikið magn kviku hefur safnast fyrir frá því að gosi lauk 16. janúar. 

„Líklegt er að sá tími sem það tekur að ná sama kvikumagni og fyrir síðasta gos sé mældur í vikum frekar en dögum. Verið er að vinna reiknilíkön til að fá skýrari mynd af stöðu kvikusöfnunar.“

Skjálftavirknin á svæðinu sé áfram væg og mestmegnis í kringum Hagafell. Það megi segja að skjálftavirknin sem mælist nú sé í takti við þá virkni sem sést hefur á svæðinu í kjölfar eldgosa.

Jarðfall ofan í sprungur helsta hættan

Sem áður segir hefur hættumat fyrir Grindavík verið fært niður í appelsínugulan, töluverð hætta.

Veðurstofa Íslands

„Það skal tekið fram að þó svo að heildarhættumat fyrir Grindavík hafi verið fært niður um eitt stig, er hætta í tengslum við sprungur áfram metin mjög mikil. Það er hættan sem nú er kölluð „jarðfall ofan í sprungu“ og lýsir hættu sem gæti verið til staðar þar sem sprungur leynast undir ótraustu yfirborði sem gæti gefið sig.“

Hættumat í tengslum við „sprunguhreyfingar“ innan Grindavíkur hafi hinsvegar verið lækkað. Þar sé verið að meta hvort hætta sé til staðar að sprungur sem þegar hafi myndast stækki eða að nýjar sprungur myndist. GPS gögn sýni að mjög lítil hreyfing hefur mælst innan Grindavíkur síðustu daga og því sé sú hætta metin minni en áður. Hætta vegna sprunguhreyfinga sé nú metin töluverð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×