Enski boltinn

Fyrsti sigur City á Tottenham-vellinum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Nathan Ake skoraði mark Manchester City. Þeirra fyrsta í sex tilraunum á Tottenham-vellinum.
Nathan Ake skoraði mark Manchester City. Þeirra fyrsta í sex tilraunum á Tottenham-vellinum. Chris Brunskill/Fantasista/Getty Images

Ensku bikarmeistararnir í Manchester City unnu 0-1 sigur er liðið heimsótti Tottenham í fjórðu umferð FA-bikarsins í kvöld.

Ensku bikarmeistararnir í Manchester City unnu 0-1 sigur er liðið heimsótti Tottenham í fjórðu umferð FA-bikarsins í kvöld.

Þetta var í sjötta sinn sem Manchester City heimsækir nýja heimavöllinn hjá Tottenham sem var tekinn í notkun árið 2019. Í fyrstu fimm heimsóknum City á völlinn hafði liðið tapað öllum fimm leikjunum og aldrei hafði liðið náð að skora.

Eins og í fyrri heimsóknum City á völlinn vantaði liðinu ekki færin til að skora. Oscar Bobb kom boltanum vissulega í netið fyrir gestina eftir aðeins fimm mínútna leik, en aðstoðardómarinn flaggaði og markið dæmt af vegna rangstöðu.

Liðið skapaði sér nokkur færi í viðbót til að skora, en eins og í fyrri heimsóknum virtist boltinn einfaldlega ekki vilja fara inn. Heimamenn í Tottenham sköpuðu sér nokkrum sinnum góðar stöður, en færin létu á sér standa.

Það var ekki fyrr en á 88. mínútu að gestirnir náðu loksins að brjóta ísinn. Kevin De Bruyne tók þá hornspyrnu sem heimamenn réðu ekki við og boltinn skoppaði inni á markteig áður en Nathan Aké mokaði honum yfir línuna. Guglielmo Vicario, markverði Tottenham, fannst Ruben Dias brjóta á sér í aðdraganda marksins, en fékk ekkert fyrir sinn snúð og markið fékk að standa.

Reyndist þetta eina mark leiksins og niðurstaðan varð því 0-1 sigur bikarmeistara City sem eru á leið í 16-liða úrslit FA-bikarsins, en Tottenham situr eftir með sárt ennið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×