Nokkuð er um að niðurstöður rannsókna sýni þetta og vilja sumir meina að auðmýkt sé meðal þremur mikilvægustu eiginleika árangursríkra leiðtoga.
Reed Hastings, stofnandi og fyrrum forstjóri Netflix en núverandi stjórnarformaður, er einn þeirra sem segir auðmýkt lykilatriði í góðri stjórnun.
Hastings skrifaði meðal annars um þetta í bókinni sinni No Rules Rules: Netflix and the Culture of Reinvention. Þar segir hann:
Auðmýkt er mjög mikilvægur eiginleiki í leiðtogum og fyrirmyndum.
Sýndu auðmýkt með því að fara ekki hátt um þann árangur sem þú nærð sjálfur. Láttu frekar aðra um að segja frá því.
Þegar þú gerir mistök skaltu hins vegar segja frá þeim hátt og snjallt svo allir heyri. Því þannig gefur þú fólki færi á að læra líka af þessum mistökum.“
En hvernig getum við metið hvort leiðtogar séu auðmjúkir í sínu starfi eða ekki? Jú, hér eru dæmi um nokkrar birtingarmyndir sem einkenna þessa stjórnendur:
- Þeir viðurkenna mistök sín
- Þeir falast meðvitað eftir því að fá endurgjöf og hlusta á gagnrýnisraddir
- Þeir eigna sér ekki sigra sem teymi hafa náð í sameiningu og deila almennt áfangasigrum með fólkinu sínu
- Þeir blása fólki byr í brjóst
- Þeir eru líklegir til að ráða rosalega flott og hæft fólk í teymin sín
Auðmjúkir leiðtogar eru líklegir til að ná góðum árangri í starfi sínu. Til dæmis eru þeir sagðir sérstaklega færir í því að virkja alla til þátttöku, að skapa jákvætt andrúmsloft starfsfólks sín á milli þar sem virðing og þakklæti er í fyrirrúmi, að efla hugmyndaauðgi og lausnarmiðað viðhorf starfsfólks, að efla nýsköpun innan vinnustaðarins, gagnaleit og að ákvarðanir séu teknar með upplýstum hætti.
En geta stjórnendur þjálfað sig í auðmýkt?
Já, svo segja sérfræðingar því að auðmýkt er meðal þeirra atriða sem sumir stjórnendur falast eftir að fá þjálfun í hjá stjórnendaráðgjöfum.
Hér eru dæmi um einfaldar æfingar sem stjórnendur geta gert, til að þjálfa sig í að sýna auðmýkt í starfi.
Virk hlustun og spurningar
Það er ekki nóg að vera dugleg að spyrja starfsfólk spurninga, til dæmis um hvað því finnst. Því til þess að ná árangri sem stjórnandi, snýst málið um að spyrja spurninga og hlusta.
Að falast eftir nýjum hugmyndum
Leiðtogi sem falast eftir nýjum hugmyndum og lausnum frá starfsfólki sínu, sýnir um leið að hann/hún telur sig ekki vita svörin við öllu og treystir á sitt fólk til að teymið sem heild nái sem bestum árangri.
Samkennd, tilfinningagreind
Það getur vel verið að AI gervigreindin sé að tröllríða öllu, en fyrir vikið eru allir persónulegir eiginleikar stjórnenda líka enn meira lykilatriði. Rannsóknir hafa sýnt að það að sína samkennd sé merki um sterka tilfinningagreind leiðtoga.
Uppbyggileg samskipti
Auðmýkt leiðtoga endurspeglast líka í þeim eiginleika stjórnandans að vilja læra meira sjálfur. Þetta þýðir að leiðtogi sem vill ná góðum árangri, leggur mikla áherslu á að samskipti séu jákvæð og uppbyggileg innan vinnustaðarins. Ekki síst þau sem snúa að honum sjálfum.
Að sýna ábyrgð í verki
Góður leiðtogi skellur ekki skuldinni á starfsfólkið sitt ef betur má fara eða tilskildum árangri er ekki náð. Þvert á móti lítur hann á ábyrgð sína sem stjórnanda sem lykilatriði tli þess að tryggja að starfsfólk nái sem bestum árangri.