Arsenal nálgast toppinn

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Gabriel Jesus skoraði og lagði upp fyrir Arsenal í kvöld.
Gabriel Jesus skoraði og lagði upp fyrir Arsenal í kvöld. Robbie Jay Barratt - AMA/Getty Images

Arsenal vann mikilvægan 2-1 útisigur er liðið heimsótti Nottingham Forest í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld.

Gestirnir í Arsenal voru mun sterkari aðilinn frá upphafi til enda, en þrátt fyrir það átti liðið í stökustu erfiðleikum með að skora. Hvorugu liðinu tókst að finna netmöskvana í fyrri hálfleik og því var staðan enn 0-0 þegar flautað var til hálfleiks og liðin gengu til búnigsherbergja.

Áfram héldu gestirnir að sækja í síðari hálfleik og það bar loksins árangur á 65. mínútu þegar Gabriel Jesus kom boltanum í netið úr þröngu færi.

Jesus var svo aftur á ferðinni sjö mínútum síðar þegar hann fann Bukayo Saka inni á vítateig sem kláraði vel og tvöfaldaði forystu Arsenal.

Varamaðurinn Taiwo Awoniyi, sem var að koma til baka eftir meiðsli, gaf heimamönnum hins vegar von á 89. mínútu þegar hann gerði vel gegn William Saliba og kom svo boltanum framhjá David Raya í marki Arsenal og bjó til óvænta spennu fyrir uppbótartíma leiksins.

Heimamönnum tókst þó ekki að finna jöfnunarmarkið og niðurstaðan varð 2-1 sigur Arsenal sem nú er með 46 stig eftir 22 leiki, tveimur stigum minna en topplið Liverpool sem á þó leik til góða. Nottingham Forest situr hins vegar í 16. sæti með 20 stig, tveimur stigum fyrir ofan fallsæti.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira