„Liverpool var eins og pöbbalið“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. febrúar 2024 07:00 Virgil van Dijk og félagar í Liverpool áttu ekki góðan dag í gær og töpuðu toppslagnum á móti Arsenal. Getty/Justin Setterfield/ Roy Keane, fyrrum fyrirliði Manchester United og nú sérfræðingur Sky Sports, sparaði ekki yfirlýsingar sínar þegar hann var að lýsa frammistöðu Liverpool í 3-1 tapi á móti Arsenal í toppslag ensku úrvalsdeildarinnar í gær.
Jürgen Klopp, kattspyrnustjóri Liverpool, viðurkenndi það eftir leikinn að Arsenal hafi verið mun betra liðið og hafi átt sigurinn skilinn. Arsenal skapaði mun hættulegri færi allan leikinn og það sást vel á tölfræði eins og þeirri um áætluð mörk (xG) sem Arsenal vann 3,68 - 0,46 sem eru gríðarlegir yfirburðir í slíkri tölfræði. Keane var vægast sagt ekki hrifinn af frammistöðu Liverpool og þá sérstaklega í varnarleiknum. „Ákefðin í leik Liverpool frá fremsta manns til þess aftasta, hvort sem þeir voru með boltann eða ekki. Ég trúi því ekki hversu lélegir þeir voru. Arsenal á samt hrós skilið því þeir mættu öflugir til leiks og tóku á þeim,“ sagði Roy Keane. „Varnarleikur Liverpool og mörkin sem þeir voru að fá á sig. Liverpool var eins og pöbbalið í varnarleiknum ,“ sagði Keane. Það var einkum annað markið sem var skrautlegt því þá rákust Alisson Becker markvörður og Virgil van Dijk saman og boltinn datt fyrir fætur Gabriel Martinelli sem skoraði í tómt markið. Keane taldi enn fremur að hvorki Arsenal né Liverpool séu með nægilega öflug lið til að koma í veg fyrir enn einn Englandsmeistaratitil Manchester City. View this post on Instagram A post shared by Sky Sports (@skysports)
Enski boltinn Mest lesið Bein útsending: Íslenska ofurfólkið keppir við þau bestu í heimi Sport „Hún er hjartað og lungað í liðinu“ Körfubolti Komin aftur á völlinn þremur mánuðum eftir barnsburð Handbolti PSG aftur á toppinn Fótbolti „Gæti verið minn síðasti leikur á laugardaginn“ Íslenski boltinn Sjáðu sigurmarkið sem dæmt var af Skagamönnum Fótbolti Ásta og Laufey valdar í úrvalslið EM Sport Í leyfi eftir að hafa misst fjögurra mánaða afabarn Enski boltinn Elvar skoraði sex þegar Melsungen fór á toppinn Handbolti Diljá Ýr skoraði í stórsigri Leuven Fótbolti Fleiri fréttir Everton vann og endurkomusigrar hjá Leicester og Villa Arsenal mistókst að koma sér á toppinn Langþráð og laglegt mark Höjlund tryggði Man. Utd sigurinn Willum Þór með mikilvægt mark í endurkomusigri Þrjú mörk á sjö mínútum í sannfærandi sigri Spurs Eigandinn þuklaði á fyrirliða kvennaliðsins Í leyfi eftir að hafa misst fjögurra mánaða afabarn „Ævintýri og lygar í boði sumra ykkar“ Mainoo frá í nokkrar vikur Ræddu við tíu en fáir kannast við símtal Vilja prófa að leyfa áfengi á kvennaleikjum í Englandi Pogba segir að danssagan sé lygi Beckham sárnar hvernig fólk lítur á ferilinn hans Labbar mest af öllum í ensku úrvalsdeildinni Allt bendir til þess að Liverpool missi Trent í sumar Eiginkona Kyle Walker sækir um skilnað Neville um Tuchel: „Ákveðin vonbrigði“ Sir Alex bannað að fara inn í klefann eftir leiki Tuchel skrifaði undir samninginn fyrir átta dögum Æfur út í eigendur Man. Utd: „Hendi þeim öllum í risapoka af skít“ Tuchel tekur við enska landsliðinu Stjóri Arsenal sagði upp eftir slaka byrjun Sir Alex slapp ekki við niðurskurðarhnífinn hjá Man. United Stjóri Stuttgart hafnaði United Dagný kom við sögu í jafntefli West Ham Saka hefði getað spilað gegn Finnum Salah farinn heim til Liverpool: Ofbeldisfullir andstæðingar og hættulegur völlur Síðasta tímabil Haaland með Manchester City? Hlerunarbúnaður í klefa United á Villa Park tók upp ræður Ten Hag Jason lagði upp í sigri gegn liði 92-árgangsins Sjá meira