Innlent

Gjall að finnast í Grinda­vík

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Kristín Jónsdóttir, náttúruvásérfræðingur Veðurstofunnar.
Kristín Jónsdóttir, náttúruvásérfræðingur Veðurstofunnar. Vísir/Arnar

Vart hefur orðið við gjall í Grindavík, eða gjósku úr hrauninu frá gosinu sem hófst í morgun. Ólíklegt er talið að hraun renni til suðurs í átt að Grindavík eins og staðan er núna.

Þetta segir Kristín Jónsdóttir, náttúruvásérfræðingur, í samtali við Ríkisútvarpið. Hún segir meira áberandi hraunstraum renna til vesturs. Öll sprungan sé norðan við vatnaskil sem þýði að hraunið muni renna austur, vestur og norður en ólíklega í suður í átt til Grindavíkur.

„Mitt fólk er í því núna að taka þessar upplýsingar um akkúrat staðsetninguna og reikna hraunfræðilíkön. Miðað við myndir sem ég hef séð virðist vera heldur meira hraunstreymi milli Sýlingarfells og Stóra Skógafells til vesturs heldur en við höfum áður séð.“

Gjall líkt og í eldgosi í Fagradalsfjalli

Örstutt er frá því gjall sást á jörðu í Grindavík.

„Gosmökkurinn hann náttúrulega fylgir bara vindum. Þarna eru norðaustlægir vindar og þeir hreinlega feykja þessum kornum, þau berast bara með gosmekkinum og það hrynur þá úr honum,“ segir Kristín.

Grindavík sé einungis í þriggja kílómetra fjarlægð frá eldgosinu. Það sé því ekkert óeðlilegt að gjóska leiti þangað. Hún rifjar upp að hið sama hafi gerst í eldgosinu í Fagradalsfjalli árið 2021, þá hafi á tímabili verið mikil strókavirkni og gjallmyndun.

„Þetta eru mjög léttir molar, þetta eru loftkenndir molar. Þeir geta alveg verið nokkrir sentímetrar að stærð en það er auðvitað ekkert þægilegt að fá þá á sig.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×