Enski boltinn

Búinn að missa af tvö hundruð leikjum með Man. United

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Luke Shaw hefur verið afar óheppinn með meiðsli sem leikmaður Manchester United.
Luke Shaw hefur verið afar óheppinn með meiðsli sem leikmaður Manchester United. Getty/James Baylis

Manchester United óttast það að tímabili sé búið hjá enska varnarmanninum Luke Shaw.

Shaw er enn á ný að glíma við meiðsli og verður nú líklegast frá í að minnsta kosti tvo til þrjá mánuði vegna þeirra. Þeir bjartsýnu sjá hann koma inn undir lok leiktíðar en þeir svartsýnustu sjá hann ekki spila aftur fyrir liðið fyrr en í haust.

Shaw byrjaði síðasta leik liðsins á móti Luton Town en fór meiddur af velli fyrir hálfleik. Hann tognaði á vöðva og eftir myndatöku kom í ljós að þessi meiðsli eru af alvarlegri gerðinni. ESPN segir frá og hefur heimildir fyrir því að Shaw spili líklega ekkert meira á tímabilinu.

Hinn 28 ára gamli Shaw hefur verið fastamaður í United liðinu þegar hann hefur verið leikfær og oft spilað vel. Reynsla hans og fjölhæfni nýtist liðinu vel.

Það er ekki nóg með að Shaw missi mögulega af restinni af tímabilinu þá er ólíklegt að hann verði með enska landsliðinu á EM í sumar.

Shaw hefur oft spilað sem miðvörður í miðvarðarhallæri United liðsins en á meiðslalistanum er einnig annar öflugur miðvörður, Lisandro Martínez. Það er líka skortur á vinstri bakvörðum hjá United því Tyrell Malacia er að ná sér af hnémeiðslum og lánssamningur Sergio Reguilón endaði í janúar.

Victor Lindelöf og Sofyan Amrabat hafa báðir þurft að spila í vinstri bakvarðarstöðunni í neyð.

Shaw hefur aðeins náð að spila fimmtán leiki á þessu tímabili en hann missti einnig þrjá mánuði út frá ágúst til nóvember síðastliðnum.

Síðan að Shaw kom til United árið 2014 þá hefur hann misst af tvö hundruð leikjum vegna meiðsla sem er ótrúleg tala.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×