Forstjóri Alvotech væntir þess að stórir sölusamningar klárist „á næstu vikum“
![„Það mun klárlega draga til tíðinda á næstu mánuðum,“ segir Róbert Wessman, forstjóri og stjórnarformaður Alvotech, þegar hann er spurður um mögulega nýja samstarfssamninga við lyfjafyrirtæki vegna lyfja sem eru í þróun hjá íslenska félaginu.](https://www.visir.is/i/AB8F33BBDBCC81A8B09573CC5B07655FE4FC6439C9FA06500E435A5F8C6D1ACA_713x0.jpg)
Alvotech og samstarfsaðili þess í Bandaríkjunum, lyfjarisinn Teva, eru núna í „virkum viðræðum“ vegna stórra samninga um sölu á líftæknilyfjahliðstæðu íslenska fyrirtækisins við eitt mesta selda lyf í heimi, að sögn forstjóra félagsins, og ættu þær að klárast á næstu vikum. Eftir að samþykki fékkst um markaðsleyfi vestanhafs áformar Alvotech að auka umsvif sín í Vatnsmýrinni með því að efla framleiðslugetuna og fjölga enn frekar starfsfólki.
Tengdar fréttir
![](https://www.visir.is/i/9745940006917A375499FF15A526F55B476C74D1BEEDE8BB98082D5E561EE816_308x200.jpg)
Alvotech fær langþráð grænt ljós í Bandaríkjunum
Matvæla- og lyfjaeftirlit Bandaríkjanna (FDA) hefur veitt Alvotech leyfi til sölu og markaðssetningar í Bandaríkjunum á Simlandi (adalimumab-ryvk) sem líftæknilyfjahliðstæðu við Humira. Þetta kemur fram í tilkynningu Alvotech til Kauphallarinnar.
![](https://www.visir.is/i/AB8F33BBDBCC81A8B09573CC5B07655FE4FC6439C9FA06500E435A5F8C6D1ACA_308x200.jpg)
IFS verðmetur Alvotech 47 prósentum hærra en markaðurinn
IFS greining verðmetur gengi Alvotech 47 prósentum yfir markaðsverði. Fái fyrirtækið markaðsleyfi í Bandaríkjunum fyrir hliðstæðu af líftæknilyfinu Humira, sem er gigtarlyf, í febrúar hækkar verðmatið þannig að það verður næstum tvöfalt hærra en markaðsvirðið er um þessar mundir. „Líftæknilyfjamarkaðurinn hefur farið ört vaxandi, í raun allt frá upphafi, sem gerir markað fyrir hliðstæðulyf einnig mjög spennandi og eftirsóknarverðan.“