Innlent

Spyr sig hvað fylli mælinn hjá ís­lenskum bændum

Rafn Ágúst Ragnarsson og Bjarki Sigurðsson skrifa
Vigdís Häsler framkvæmdastjóri Bændasamtakanna segir mótmæli bænda um Evrópu eiga hljómgrunn meðal starfsbræðra sinna hér á landi.
Vigdís Häsler framkvæmdastjóri Bændasamtakanna segir mótmæli bænda um Evrópu eiga hljómgrunn meðal starfsbræðra sinna hér á landi. Vísir/Einar

Vigdís Häsler framkvæmdastjóri Bændasamtakanna segir stöðu íslenskra bænda dapra en að engin mótmæli hafi verið skipulögð líkt og víða í Evrópu um þessar mundir. Hún segir Bændasamtökin fylgjast vel með aðgerðum bænda úti í heimi.

Bændur í Evrópu hafa undanfarið verið að mótmæla aðgerðarleysi Evrópusambandsinsþegar kemur að lágu matvöruverði, ódýrri innfluttri vöru og þungu regluverki er varðar búgreinar. Mótmælin hafa verið hvað hörðust í Brussel í Belgíu þar sem höfuðstöðvar Evrópuþingsins eru. Þar hafa bændur lokað götum, sprautað mykju á lögreglumenn og grýtt þá.

„Bændur í Evrópu eru líkt og íslenskir bændur að mótmæla meðal annars slælegri afkomu og regluverki og auknum innflutningi á dýraafurðum,“ segir Vigdís.

Hún segir að þó íslenskir bændur hafi ekki efnt til slíkra aðgerða viti hún ekki hvað geti hugsanlega verið kornið sem fyllir mælinn. Viðkvæmar viðræður varðandi kolefnisskatt á landbúnað standi yfir í Danmörku og fari Ísland að þeirra fordæmi gæti dregið til tíðinda.

„ Við erum náttúrlega þekkt fyrir það að líta til nágrannalandanna þegar kemur að slíku regluverki,“ segir Vigdís.

Innflutningur matvæla stóraukist

Vigdís segir jafnframt stöðu íslenskra bænda hafa verið mjög dapra og markaðshlutdeild innlendra matvæla farið minnkandi. Innflutningur á matvælum erlendis frá hafi aukist til muna.

„Hér áður fyrr var markaðshlutdeild á íslensku nautakjöti um áttatíu prósent en er nú komin í kringum 60 til 65 prósent. Þannig að innflutningurinn er að aukast og við þurfum að horfa til þess að það er kannski ekki verið að framleiða matvælin undir sömu starfsskilyrðum og við erum að gera hér,“ segir Vigdís.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×