Fjárfestar virðast enn hafa „litla trú“ á viðsnúningi í rekstri Kviku
![Jón Sigurðsson, forstjóri Stoða sem er langsamlega stærsti einkafjárfestirinn í Kviku, segir að þegar salan á TM klárast á árinu þá telji hann að „veruleg bæting“ verði á undirliggjandi rekstri enda sé kominn tími á að miklar fjárfestingar í ýmsum þjónustum bankans fari að skila arðsemi.](https://www.visir.is/i/4C7C197DFE3BA6580A143130CFB44EA0216031E1B5EDB3ECBEFABA5029679CFD_713x0.jpg)
Á síðustu fjórðungum hefur „fátt ef eitthvað“ fallið með rekstrinum hjá Kviku og miðað við markaðsvirði bankans, sem er með TM í söluferli, eru væntingar fjárfesta til framhaldsins „mjög hófstilltar,“ að sögn forstjóra Stoða sem telur að undirliggjandi hagnaður eigi að geta tvöfaldast. Fjárfestingafélagið, sem er ráðandi hluthafi í First Water, segir eldið hafa gengið „vonum framar“ í fyrsta fasa og útlit sé fyrir að heildarframleiðsla landeldisfyrirtækisins verði töluvert meiri en áður var talið.
Tengdar fréttir
![](https://www.visir.is/i/805911A9E1500734ADC03FB6F95F2B66E10229850B3FD26F249F4CFDBA840543_308x200.jpg)
Stór bankafjárfestir segir óhóflegar eiginfjárkröfur kosta samfélagið tugi milljarða
Langsamlega stærsti einkafjárfestirinn í Kviku og Arion gagnrýnir stjórnvöld fyrir að vilja ekki „taka á rót vandans“ í íslensku bankakerfi sem hann segir vera „óhóflegar“ eiginfjárkröfur og kosti heimili og atvinnulífið árlega tugi milljarða vegna meiri vaxtamunar en ella. Forstjóri Stoða hefði viljað sjá vaxtalækkunarferlið hefjast strax á síðasta fundi og brýnir Seðlabankann sem hann telur að sé „oft sinn versti óvinur“ í að ná niður verðbólguvæntingum með svartsýnum spám sínum um verðbólguhorfur.