Liverpool þarf að bíða eftir Salah Sindri Sverrisson skrifar 1. mars 2024 16:00 Mohamed Salah á við meiðsli að stríða. Getty/Marc Atkins Mohamed Salah á við meiðsli að stríða og verður ekki með Liverpool þegar liðið mætir Nottingham Forest í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta á morgun.
Salah hefur glímt við vöðvameiðsli síðustu vikur. Hann meiddist á Afríkumótinu í janúar en kom inn á sem varamaður í leik gegn Brentford 17. febrúar, skoraði eitt mark og lagði upp annað. Síðan þá hefur hann ekki getað spilað og óvíst er hvenær nákvæmlega hann snýr aftur til keppni. „Ég held að það sé nú ekkert of langt í Mo en hann verður ekki á vellinum á morgun og svo metum við bara stöðuna. Mögulega verður hann með í næstu viku, hann er á réttri leið, en ekki á morgun,“ sagði Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool. 🚨🇪🇬 Jurgen Klopp: “Mo Salah will not be ready to play tomorrow but he’s on the way back”.“Maybe next week. Getting closer…”.“Honestly I don’t think he is too far off… but he will not be available tomorrow”. pic.twitter.com/c9J18nA70B— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) March 1, 2024 Liverpool hefur þrátt fyrir mikil meiðslavandræði unnið síðustu fimm leiki í röð í öllum keppnum. Eftir leikinn við Forest spilar liðið við Sparta Prag í Evrópudeildinni næsta fimmtudag, áður en kemur að stórleiknum við Manchester City 10. mars og bikarslagnum við Manchester United 16. mars. Klopp greindi frá stöðunni á fleiri leikmönnum sem verið hafa frá keppni. Darwin Núnez og Dominik Szoboszlai æfðu með liðinu í gær og verða mögulega með á morgun, og staðan verður einnig tekin á Wataru Endo og Andrew Robinson, sem verið hefur veikur, en þeir áttu að geta verið með á æfingu í dag.
Enski boltinn Mest lesið Pabbinn fékk tattú á punginn Sport Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Sport Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Enski boltinn Átján ára hjólreiðakona í lífshættu Sport Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti Dagskráin í dag: Körfuboltakvöld, Karólína Lea og mun meira Sport Arsenal sneri dæminu sér í vil Fótbolti Fleiri fréttir Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Stefán fær Arsenal í heimsókn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Sjá meira