Innlent

Vaktin: Kviku­hlaup skammt frá Sýlingar­felli

Oddur Ævar Gunnarsson og Magnús Jochum Pálsson skrifa
Frá síðasta hrauni.
Frá síðasta hrauni. Vísir/Vilhelm

Kvikuhlaup sem hófst skammt frá Sýlingarfelli um 16 í dag virðist hafa stöðvast í bili þar sem smáskjálftavirkni á svæðinu er hætt. Enn er þó of snemmt að fullyrða að kvikuhlaupinu sé lokið og að ekki komi til eldgoss.

Áfram mælist aflögun á svæðinu en þegar um kvikuhlaup er að ræða mælist aflögun í nokkrar klukkustundir eftir að skjálftavirknin hættir.

Veðurstofan vaktar svæðið til að fylgjast með hvort að virknin taki sig upp aftur næstu klukkustundirnar eða hvort kvikuhlaupinu sé lokið. Möguleiki er að kvika læðist upp til yfirborðs líkt og dæmi eru um í eldgosum við Fagradalsfjall.

Fylgst verður með gangi mála í vaktinni á Vísi neðst í fréttinni. Allir hafa skjálftarnir mælst við Stóra-Skógfell og Sýlingarfell.  Sama svæði og líklegast hefur verið talið að eldgos komi upp á. 

Hægt er að fylgjast með af Reykjanesi í beinni útsendingu í vefmyndavél Vísis hér fyrir neðan.

Ef vaktin birtist ekki hér fyrir neðan er ráð að endurhlaða síðuna. Þá birtist vaktin um leið.




Fleiri fréttir

Sjá meira
×