Myndaveisla: Fullt út úr dyrum og næstum uppselt fyrir opnun Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 4. mars 2024 20:00 Það var troðfullt út úr dyrum á opnun á nýju rými hjá Gallery Porti á laugardaginn. Listunnendur létu sig ekki vanta og var erfitt að næla sér í verk á opnuninni. Þórsteinn Svanhildarson Það var margt um manninn í opnun á nýju rými Gallery Ports síðastliðinn laugardag. Nokkrar stórstjörnur íslenskrar myndlistar stóðu þar á samsýningunni Lost Track en gestir biðu í röð eftir að komast inn og fullt var út úr dyrum.
Í fréttatilkynningu segir: „Gallery Port hefur flutt sig um set af Laugaveginum yfir á Hallgerðargötu 19-23 á Kirkjusandi. Laugardaginn 2. mars opnaði þar fyrsta sýningin, samsýningin Lost Track. Þar koma saman myndlistarmennirnir Baldur Helgason, Claire Paugam og Loji Höskuldsson. Þessi fyrsta opnun á nýjum stað var með þeim fjölsóttustu sem Gallery Port hefur haldið en fyrir opnun var á þriðja tug gesta fyrir utan að bíða eftir að komast á sýninguna.“ Fjöldinn allur af fólki mætti á opnun samsýningarinnar Lost Track.Þórsteinn Svanhildarson Það er mikill áhugi á myndlist í dag enda var það svo að fyrir opnun voru öll verk eftir Loja Höskuldsson seld. Sömuleiðis var búið að taka frá og kaupa verk Baldurs Helgasonar en Baldur á verk í mörgum einkasöfnum bæði hérlendis og erlendis. Hann var viðmælandi í Vísisþættinum Kúnst í fyrra sem má sjá hér: „Hin franska Claire Paugam var kontrastinn á milli þeirra Baldurs og Loja en hún vinnur mikið með ljósmyndir og innsetningar, en hún er mjög efnileg ung listakona sem hlaut meðal annars Hvatningarverðlaun Íslensku myndlistarverðlaunanna 2020. Fullt hús og mikil veisluhöld og það er óhætt að segja að mikið líf hafi færst yfir Kirkjusandinn við þessa viðbót að fá Gallery Port í hverfið,“ segir jafnframt í tilkynningunni. Verk Claire Paugam.Þórsteinn Svanhildarson Sýningin stendur yfir til miðvikudagsins 27. mars en þá er lokahóf sýningarinnar, sem verður kynnt nánar síðar. Frá vinstri: Steingrímur Eyfjörð, Ármann Reynisson, Sölvi Snær Magnússon og Elías Guðmundsson.Þórsteinn Svanhildarson Natka Klimowicz skenkir í glös.Þórsteinn Svanhildarson Fjölbreyttar kynslóðir sóttu opnun hjá Gallery Porti.Þórsteinn Svanhildarson Jón Valur og Guðmundur Jónsson eigandi Listamenn, gallerí og innrömmunarverkstæði.Þórsteinn Svanhildarson Bronsstytta Baldurs Helgasonar vakti lukku gesta á ólíkum aldri.Þórsteinn Svanhildarson Aðalsteinn Jörundsson og Helgi Örn Pétursson.Þórsteinn Svanhildarson Smjör og neftóbak er meðal viðfangsefna í verki Loja Höskuldssonar í bakgrunni.Þórsteinn Svanhildarson Fatahönnuðurinn og listakonan Ragna Bjarnadóttir fyrir miðju eflaust á listrænu og skemmtilegu spjalli við Patty Spyrakos og fleiri.Þórsteinn Svanhildarson Baldur Helgason myndlistarmaður ræðir við gesti hér til vinstri. Búningahönnuðurinn Tanja Huld Levý lét sig ekki vanta og mætti með kærastanum sínum Jökli Jónssyni.Þórsteinn Svanhildarson Margt var um manninn á opnuninni. Í bakgrunni má sjá verk eftir Baldur Helgason.Þórsteinn Svanhildarson Loji Höskuldsson myndlistarmaður á spjalli við Brynhildi Bolladóttur og aðra sýningargesti.Þórsteinn Svanhildarson Gestir voru mættir fyrir opnun og biðu eftir því að komast inn.Þórsteinn Svanhildarson Fólk streymdi stöðugt inn á meðan að opnuninni stóð.Þórsteinn Svanhildarson Skarphéðinn Bergþóruson, einn eiganda Gallery Ports, opnar fyrir fyrstu gestum.Þórsteinn Svanhildarson Að sögn Portsins var mjög góð stemning á opnuninni. Þórsteinn Svanhildarson Listamaðurinn Narfi Þorsteinsson virðir fyrir sér málverk Baldurs Helgasonar.Þórsteinn Svanhildarson Myndlistarmennirnir Sigurður Ámundason og Magnús Orri Magnússon.Þórsteinn Svanhildarson Ragnheiður Sigurðardóttir Bjarnason og Dagný Berglind Gísladóttir.Þórsteinn Svanhildarson Baldur Helgason spjallar við Anton Lyngdal.Þórsteinn Svanhildarson Mörður Áslaugarson og Snorri Ásmundsson voru í góðu stuði.Þórsteinn Svanhildarson Menningarmaðurinn Geoffrey Þ. Huntingdon-Williams var meðal gesta.Þórsteinn Svanhildarson Eyjólfur Pálsson og arkítektinn Ásmundur Hrafn Sturluson létu sig ekki vanta.Þórsteinn Svanhildarson Að sögn Portsins var mjög góð stemning á opnuninni.Þórsteinn Svanhildarson Listamaðurinn Steingrímur Eyfjörð var í góðum félagsskap.Þórsteinn Svanhildarson Sigrún Karls Kristínardóttir og Björn Þór Björnsson.Þórsteinn Svanhildarson Sýningin stendur til 27. mars næstkomandi.Þórsteinn Svanhildarson
Menning Myndlist Samkvæmislífið Sýningar á Íslandi Mest lesið Hafði ekki hugmynd hver Palli væri á balli í Gamla bíói Lífið Forsetagæinn hyggst hlaupa sitt lengsta hlaup til þessa Lífið Fundu ástina á ný eftir skilnað Lífið Fimm ákærðir í tengslum við andlát Perry Lífið Sunneva og Tanja ræða lýtaaðgerðirnar sínar Lífið Borgaði tvöfalt meira fyrir miklu minna Lífið Sóldís Vala er Ungfrú Ísland Lífið Forstöðumaðurinn fannst í Salnum Menning Hjólakeppnin Grefillinn nýtur sífellt meiri vinsælda Lífið samstarf Ungfrú Ísland: Svona svöruðu stúlkurnar lokaspurningunni Lífið Fleiri fréttir Forstöðumaðurinn fannst í Salnum Óður til kvenlíkamans í öllu sínu veldi Óli Egils snýr sér að Ladda eftir Bubba Snæbjörn nýr leikhússtjóri í Tjarnarbíói Allt á fullri ferð á Húsavík um helgina Guðrún Jóhanna nýr skólastjóri Söngskólans Umræða um feðraveldi og karlrembu skekur djassbransann Útlit fyrir bíólausa Akureyri Komið að endalokum eftir 25 ár Kanónur með listræna þrennu á Flateyri „Leiðin verður að vera óviss svo vel sé“ „Ég lofa miklu blóði“ Gera grín að bransanum með „virtustu verðlaunum heims“ Fjöldamet á stærstu listasýningu í sögu Hornafjarðar Sjá meira