„Þetta er ekki gullmiðinn frá Willy Wonka“ Sindri Sverrisson skrifar 9. mars 2024 09:00 Ange Postecoglou stýrir Tottenham í afar mikilvægum leik gegn Aston Villa á morgun. Getty/Jack Thomas Margir telja eflaust að Tottenham-menn ættu að fagna því vel ef liðið næði sæti í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð, eins og útlit er fyrir. Stjórinn Ange Postecoglou vill hins vegar ekki gera of mikið úr því.
Postecoglou er með Tottenham í 5. sæti ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta og liðið er fimm stigum á eftir Aston Villa en með leik til góða. Liðin mætast í afar mikilvægum leik á morgun. Fjórða sætið skilar farmiða í nýja útgáfu Meistaradeildarinnar á næstu leiktíð en góðar líkur eru þó einnig á því að fimmta sætið skili farmiða þangað. Tottenham er með sex stiga forskot á Manchester United, og leik til góða. En að ná sæti í Meistaradeild Evrópu er ekki nóg til að gleðja Postecoglou mikið. „Þetta er ekki gullmiðinn frá Willy Wonka. Þetta gefur þér bara eitt ár í keppninni,“ sagði stjórinn og vísaði í söguna um Kalla og súkkulaðiverksmiðjuna, þar sem gullmiðar gáfu börnum ferð í súkkulaðiverksmiðjuna. „Ef að maður nær ekki að þroskast af þessu þá er þetta tilgangslaust. Við erum ekki í þessu til að fá að taka þátt heldur til þess að vinna eitthvað,“ sagði Postecoglou. Tottenham komst í úrslitaleik Meistaradeildarinnar árið 2019 en tapaði þar fyrir Liverpool. Síðan þá hefur liðið tvisvar komist í keppnina en í bæði skiptin mistekist að komast í gegnum 16-liða úrslitin. Samt er Postecoglou ekki að æsa sig yfir möguleikanum á að komast í keppnina. „Ég sé ekki tilgang í því að stefna á eitthvað annað en að vera númer eitt.“
Enski boltinn Mest lesið Pabbinn fékk tattú á punginn Sport Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Enski boltinn Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Sport Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti Dagskráin í dag: Körfuboltakvöld, Karólína Lea og mun meira Sport Arsenal sneri dæminu sér í vil Fótbolti Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Fótbolti Fleiri fréttir Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Stefán fær Arsenal í heimsókn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Sjá meira