Lífið

Bríet um­kringd stór­stjörnum í Japan

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Bríet hefur notið lífins á Balí frá því að störfum hennar sem dómari í Idol lauk í febrúar.
Bríet hefur notið lífins á Balí frá því að störfum hennar sem dómari í Idol lauk í febrúar.

Tónlistarkonan Bríet Isis Elfar var umkringd heimsfrægum stórstjörnum á veitingastað á The Tokyo Edition Ginze hótelinu í Japan í gærkvöldi. Bríet birti myndir af þessu glæsilega kvöldi á samfélagsmiðlinum Instagram.

Meðal stórstjarnanna má nefna bandarísku burlesque-dívuna Ditu Von Teese,  gítarleikarann og leikarann Miyavi Lee Ishihara, Nick Grimshaw, sjónvarps- og útvarpsmann, og kóreska plötusnúðinn Peggy Gou.

Dita Von Teese er með 2,7 milljón fylgjendur á Instagram. Hún var gift tónlistarmanninum Marilyn Manson 2005 til 2007.

Áður en Bríet hélt til Japan var hún á ferðalagi um Balí eftir að hafa lokið störfum sem einn dómaranna fjögurra í seríu af Idol á Stöð 2 í febrúar. Söngkonan hefur því augljóslega haft nóg á prjónunum að undanförnu.

Bríet
Bríet
Bríet
Bríet
Bríet





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.